12.6.2019

Morra opnar lifandi vinnustofu í Hönnunarsafni Íslands




Fatahönnuðurinn Signý Þórhalldóttir er að koma sér fyrir með vinnuaðstöðu í safnbúð Hönnunarsafns Íslands og mun halda áfram að þróa vörulínu sína MORRA. Innflutningspartýið verður haldið þann 17. júní nk. kl. 14. 17. júní en hátíðarhöld Garðabæjar verða haldin á Garðatorgi á sama tíma og því verður líf og fjör á torginu. Frítt verður inn á Hönnunarsafnið og því tilvalið að kíkja.

Í dag samanstendur MORRA af silkislæðum og veggmyndum á pappír þar sem íslenska flóran er í aðalhlutverki, og nú munu nýjar vörur bætast við í sumar.

Í aldaraðir hefur flóran reynst myndlistarmönnum og hönnuðum óendaleg uppspretta. Hönnunarsafn Íslands stóð í þeirri trú að nafnið Morra væri tilvísun í Morris (William Morris). Það var víst ekki hugmyndin heldur sprettur nafnið frá sögninni að marra. Það er samt ekki ólíklegt að um sé að ræða ómeðvitaða tilvísun í Morris sem frægur er fyrir blómamynstur sín. Hann ferðaðist um Ísland árin 1871 og 1873 og kallaði landið „rómantískustu eyðimörk í heimi“.

Íslenska flóran hefur lítið breyst frá því þá, þó svo að landslagið í framleiðslu og hönnunarferlið hafi gjörbreyst með nýrri prent- og tölvutækni.

Hér má sjá viðburðinn á Facebook.
















yfirlit