6.5.2019

Boð til Belgrad í Hönnunarsafni Íslands




Föstudaginn 10 maí verður serbneskt boð innblásið af Belgrad í tengslum við sýninguna Borgarlandslag í Hönnunarsafni Íslands

Jelena Ciric leiðir gesti um sögu Belgrad og Serbíu með söng og tónlistarflutningi ásamt Margréti Árnadóttur á harmónikku, allt frá dögum Tyrkjaveldisins til dagsins í dag. Gestum er einnig boðið að flögra um sýninguna undir leiðsögn Paolo Gianfrancesco, arkitekt og höfundur Borgarlandslags með serbnesku smáréttaívafi. Jelena er tónlistarkona og lagahöfundur sem er fædd í Serbíu, ólst upp í Kanada og bjó á nokkrum stöðum í heiminum áður en hún settist að á Íslandi árið 2016. Andrea Stojanovic, kokkur og varaformaður Serbneskar Menningarmiðstöðvar á Íslandi sér um veitingarnar og veislustjóri er Hlín Helga Guðlaugsdóttir, einn af sýningarstjórum sýningarinnar.

Viðburðurinn hefst klukkan 20 og lýkur 22. Miðaverð er 3.500 krónur og hámarksfjöldi gesta er 40 manns.

Miða fyrir boðið er hægt að nálgast á midi.is og hér má finna viðburðinn á Facebook.

Viðburðurinn er hluti af röð viðburða og fyrirlestra sem safnið stendur fyrir í tengslum við sýninguna Borgarlandslag sem opnaði á HönnunarMars. Á meðan á sýningunni stendur verður sex völdum borgum gert hátt undir höfði með ævintýralegum viðburðum. Þar munu borgarbúar Reykjavíkur af erlendum uppruna deila sögum sínum og fjalla um borg upprunalands síns í gegnum mat, tónlist og fleira. Hér má sjá dagskránna framundan. 7. júní New York, ágúst Denver - dagsetning tilkynnt síðar, 6. september Varsjá og loks 4. október lokapartý Reykjavík.















yfirlit