1.6.2018

Sýningaropnun | Einar Þorsteinn Ásgeirsson í Hönnunarsafninu



Laugardaginn 2.júní kl.15:00 verður skálað fyrir arkitektinum Einari Þorsteini Ásgeirssyni í Hönnunarsafni Íslands, sem árið 2014 færði safninu allt innvols vinnustofu sinnar að gjöf.

Síðustu vikur hefur skráning á verkum hans staðið yfir í Hönnunarsafninu en á laugardaginn gefst gestum tækifæri að sjá afraksturinn og skyggnast inn í hugarheim Einars. Þegar verkefnið hófst var allt í kössum en nú eru vinnan komin vel á veg og margt skemmtilegt að sjá og uppgötva. 

Einar Þorsteinn hannaði kúluhús, tarrotspil, stofnaði Handmenntaskólann sem var bréfaskóli, hannaði ýmsar tjaldbyggingar, kenndi bútasaum, hafði óendanlega mikinn áhuga á geimverum og stærðfræði og skutlum.
 

„Ég nota módel til að gera tilraunir, ég geri tilraunir til að skilja“

 

Nánar um verkefnið

Árið 2014 færði arkitektinn Einar Þorsteinn Ásgeirsson (1942–2015) Hönnunarsafni Íslands allt innvols vinnustofu sinnar að gjöf. Um er að ræða dagbækur, módel, ljósmyndir, málverk, skissubækur, húsgögn og fleira sem tengist lífi hans og störfum, samtals um 1500 munir. Einar Þorsteinn var brautryðjandi í rúmfræðirannsóknum og sérfræðingur í margflötungum. Hann var á undan sinni samtíð hvað varðar hugmyndir um sjálfbærni,  samanber kúluhúsin sem hann hannaði og voru reist um 1980. Einari er best lýst sem sannkölluðum endurreisnarmanni. Hann starfaði um langt skeið með myndlistarmanninum Ólafi Elíassyni, meðal annars við hönnun glerhjúps tónlistarhússins Hörpu.

Síðastliðnar vikur hefur starfsfólk Hönnunarsafns Íslands ásamt ýmsum góðum gestum unnið að því að skrásetja þessa muni í sýningarsal safnsins. Skráning er viðamikill hluti af starfsemi safna. Hér geta gestir fylgst með þegar hlutir eru teknir upp úr kössum, ljósmyndaðir, skráðir í safnmunaskrá og loks pakkað eftir kúnstarinnar reglum. Skráning er spennandi ferli sem víkkar sjóndeildarhringinn, kveikir neista og tengingar, hugmyndir, samtöl og minningar.
 


















yfirlit