22.5.2018

Íslensk hönnun á 3daysofdesign í Kaupmannahöfn


Ljósmynd: Hörður Lárusson.

Í tilefni af aldarafmæli fullveldisins standa Hönnunarmiðstöð Íslands og sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn fyrir tveimur sýningum á íslenskri hönnun á hönnunarviðburðinum 3daysofdesign, sem fram fer í Kaupmannahöfn dagana 24.-26. maí næstkomandi.

Þetta eru sýningarnar Fáni fyrir nýja þjóð og Illums Bolighus x Icelandic Design:


Fáni fyrir nýja þjóð



Árið 1914 kallaði fánanefnd eftir tillögum frá almenningi að íslenskum þjóðfána. Ein tillaganna er núverandi þjóðfáni Íslands.

Alls bárust 28 hugmyndir, flestar í rituðu máli. Grafíski hönnuðurinn Hörður Lárusson byggði nýverið á lýsingunum, rannsakaði frekar og bætti upp með eigin hugmyndaflugi og umbreytti tillögum í myndrænt form.

Afraksturinn var gefinn út á bók, sem nefnist einfaldlega Fáninn.

Á sýningunni mun gefa að líta úrval tillaganna, þeirra á meðal óhefðbundinn fána teiknaðann af Jóhannesi Kjarval. Einnig verður frumsýndur fáni, teiknaður og saumaður eftir lýsingum sjálfs Danakonungs, Kristjáns X, sem nýverið fundust í dagbókarfærslum konungs.

Þjóðfáni er án efa eitt sterkasta táknræna form sjálfsvitundar þjóðar, og þessi sýning mun veita innsýn í, hvernig einstaklingar, allt frá almennum borgurum til konungs, gerðu tilraunir til að hanna sérkenni íslensku þjóðarinnar.

Sýningin verður opin til 5. september 2018.

Benedikt Jónsson sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn býður til opnunar sýningarinnar, sem fram fer í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn, Strandgade 89, 1401 Kbh, miðvikudaginn 23. maí kl.16.30-18.30.





ILLUMS BOLIGHUS x ICELANDIC DESIGN





Illums Bolighus, er þekktasta hönnunarvöruhús Dana þar sem norrænni hönnun hefur verið gerð góð skil í meira en 75 ár. Á hátíðinni 3daysofdesign beinir Illums sjónum að íslenskri hönnun sem undanfarin ár hefur tekið sér stöðu á sviði norrænnar hönnunar.

Sýningin er unnin í samstarfi Illums Bolighus, Hönnunarmiðstöðvar Íslands og Sendiráðs Íslands í Kaupmannahöfn í tilefni af aldarafmæli fullveldisins.

Sýnendur eru FÓLK, Erla Sólveig Óskarsdóttir, AGUSTAV,  Ragna Ragnarsdóttir — MARÝ, Bjarni Sigurdsson Ceramics, SKATA, Dögg Design, Berlinord, ANNA THORUNN, Fuzzy, FÆRID, Bryndís Bolladóttir, Þórunn Árnadóttir og Kjartan Óskarsson.

Sýningaropnun fer fram í Illums Bolighus við Amagertorv, fimmtudaginn, 24. maí kl. 15.00—18.00 þar sem verður skálað fyrir því besta í íslenskri samtímahönnun.



















yfirlit