12.1.2018

Hvernig varð íslenska lopapeysan til?




Laugardaginn 13. janúar kl. 16:00 mun Ásdís Jóelsdóttir, lektor við Háskóla Íslands, vera með leiðsögn um sýninguna Íslenska lopapeysan – uppruni, saga og hönnun, í Hönnunarafni Íslands. Sýningin er byggð samnefndri bók sem Ásdís gaf út rétt fyrir áramót. Hönnuður sýningarinnar er Auður Ösp Guðmundsdóttir.
                                                                     
Íslenska lopapeysan þróaðist frá því að vera vinnufatnaður sem nýttist aðallega við erfið útistörf í það að verða að þjóðlegri minjavöru og vinsælli tískuvöru. Þannig endurspeglar peysan lífshætti og sögu þjóðar. Engin ein prjónakona „hannaði“ peysuna heldur hefur útlit hennar og gerð tengst mörgum áhrifavöldum og ekki síst því að hún þurfti að vera fljótprjónuð.

Íslenskar prjónakonur hafa átt veg og vanda af þessari þróun. Þjálfun og reynsla, formskynjun í munsturgerð, næmni fyrir litum og litasamsetningum ásamt ánægjunni af því að prjóna hefur verið undirstaða í hönnun lopapeysunnar.

Sýningin er farandsýning og er samstarfsverkefni Hönnunarsafns Íslands, Heimilisiðnaðarsafnsins og Gljúfrasteins.



Hönnunarsafn Íslands er staðsett á Garðatorgi 1, Garðabæ. Opið kl. 12–17 alla daga nema mánudaga.

www.honnunarsafn.is















yfirlit