12.12.2017

Lopapeysur og stafsetningarvillur í Hönnunarsafni Íslands



Boðið verður upp á kakó og kringlur, lopapeysur og stafsetningarvillur í Hönnunarsafni Íslands í Garðabæ fimmtudaginn 14. desember kl. 16 í tilefni þess að þá verða opnaðar tvær sýningar.
 

Íslenska lopapeysan – uppruni, saga og hönnun

Íslenska lopapeysan – uppruni, saga og hönnun er yfirskrift hinnar sýningarinnar sem opnuð verður í Hönnunarsafninu á fimmtudag. Íslenska lopapeysan þróaðist frá því að vera vinnufatnaður sem nýttist aðallega við erfið útistörf í það að verða að þjóðlegri minjavöru og vinsælli tískuvöru. Þannig endurspeglar peysan lífshætti og sögu þjóðar. Engin ein prjónakona „hannaði“ peysuna heldur hefur útlit hennar og gerð tengst mörgum áhrifavöldum og ekki síst því að hún þurfti að vera fljótprjónuð. Íslenskar prjónakonur hafa átt veg og vanda af þessari þróun. Þjálfun og reynsla, formskynjun í munsturgerð, næmni fyrir litum og litasamsetningum ásamt ánægjunni af því að prjóna hefur verið undirstaða í hönnun lopapeysunnar.

Sýningin byggir á rannsókn Ásdísar Jóelsdóttur og hönnuður sýningarinnar er Auður Ösp Guðmundsdóttir. Sýningin er farandsýning og er samstarfsverkefni Hönnunarsafns Íslands, Heimilisiðnaðarsafnsins og Gljúfrasteins.


Ðyslextwhere

Ðyslextwhere er lifandi sölusýning þar sem vöruhönnuðurinn Hanna Jónsdóttir hefur komið sér upp aðstöðu í anddyri safnsins og vinnur þar næstu vikurnar að verkefninu Ðyslextwhere.

Verkefnið er samstarfsverkefni Hönnu og Ingrid Brandth frá Noregi. Þær hafa framleitt og selt handprjónaðar húfur frá 2008. Það sem einkennir húfurnar er texti með stafsetningarvillum sem er algert tabú, sérstaklega í handverki

















yfirlit