27.10.2017

Tvær sýningar opnaðar í Hafnarborg um helgina



Tvær sýningar verða opnaðar í Hafnarborg laugardaginn 28. október kl. 15:00, sýningarnar „Japönsk nútímahönnun 100“ og með „Augum Minksins - Hönnun, ferli og framleiðsla.“

Japönsk nútímahönnun 100

Í aðalsal safnsins er það sýningin Japönsk nútímahönnun 100, farandsýning sem leggur áherslu á hönnun nytjahluta frá árunum 2010 – 2017. Þar hafa hundrað vandaðar hönnunarvörur verið valdar til sýningar um allan heim. Á sýningunni er að finna hversdagslega gripi sem sýna ekki aðeins fremstu hönnun og nýjustu stefnur í Japan, heldur varpa einnig ljósi á líf og áherslur fólks, sem lifir og hrærist í japanskri samtímamenningu.



Sýningin var fyrst sett upp árið 2004 og hefur farið um heiminn síðan. Þetta er endurskipulögð útgáfa sömu sýningar þar sem sjá má hundrað afbragðsdæmi um japanska hönnun með áherslu á vörur og hluti úr daglegu lífi.

Þá fléttar hún saman framúrskarandi nýjum hönnunarvörum við hönnun frá fimmta til tíunda áratugar síðustu aldar, sem haft hefur mikil áhrif á nútímahönnun. Sýningin er unnin af The Japan Foundation og kemur til Íslands í samstarfi við Japanska sendiráðið á Íslandi.

Með augum Minksins – Hönnun, ferli, framleiðsla




Sýningin Með augum Minksins – Hönnun, ferli, framleiðsla verður opnuð í Sverrissal Hafnarborgar þar sem hönnun og þróun ferðavagnsins Minksins er skoðuð allt frá frumskissum yfir í teikningar af lokafrágangi, efnisvali og tæknilegum lausnum. Minkurinn er íslensk hönnun og framleiðsla en hugmyndin að útliti og gerð Minksins er hins vegar sótt allt aftur til fjórða áratugarins, til bandaríska ferðavagnsins „The Teardrop Trailer“.

Hugmyndina fengu þeir Ólafur Gunnar Sverrisson og Kolbeinn Björnsson fyrir um fjórum árum. Í samvinnu við sænsku hönnunarstofuna Jordi Hans Design var hugmyndin þróuð áfram og unnin þar af hönnuðinum Kaesar Amin. Hönnun innviða var í höndum Emilíu Borgþórsdóttur en heildarhönnun stýrði Ólafur Gunnar Sverrisson.

Sýningarstjórar og hönnuðir sýningarinnar er Elísabet V. Ingvarsdóttir og Magnús Ingvar Ágústsson.

Sjá nánar um sýningarnar á heimasíðu safnsins www.hafnarborg.is

















yfirlit