15.12.2016

Sýning | SPOR í Hönnunarmiðstöð Íslands



Föstudaginn 16. desember kl.17 opnar sýningin SPOR í Hönnunarmiðstöð Íslands, Aðalstræti 2. Sýningin er lokahnykkurinn á afmælisdagskrá Leirlistafélags Íslands sem hefur fagnað 35 ára afmæli félagsins með fjölda viðburða á árinu.

Á sýningunni verða til sýnis verk eftir heiðursfélaga Leirlistafélagsins þeirra Gests Þorgrímssonar, Sigrúnar Guðjónsdóttir og Steinunnar Marteinsdóttur. Í kynningu segir:

„Sem frumkvöðlar og brautryðjendur í faginu marka verk þeirra spor í íslensku landslagi leirlistar þar sem í dag hafa myndast stígar sem liggja vítt og breytt um víðáttur sköpunarinnar.“

Einnig verður myndasýningu á verkum félagsmanna varpað á báðar hliðar Morgunblaðshússins, sem snúa inn í Bröttugötu og Fischersund. Þar eru annars vegar myndir sem voru settar saman fyrir sýningu félagsins Keramík í Listasafni Árnessinga á þessu ári og hins vegar myndum sem teknar voru af verkum á sýningunni sjálfri.

Myndasýningarnar draga upp mynd af þeim margbreytileika og grósku sem einkennir íslenska leirlist í dag og stikla á stóru í sögu félagsins á þeim 35 árum sem það hefur verið starfandi.

Sýningin er verður því bæði í anddyri Hönnunarmiðstöðvar Íslands í Aðalstræti 2 og á veggjum gamla Morgunblaðshússins í Aðalstræti 6-8.
 
Sporgöngufólk, sýning á verkum heiðursfélaga í Hönnunarmiðstöð Íslands stendur til 29. desember en myndasýningin á veggjum gamla Morgunblaðshússins stendur til 23. desember.

















yfirlit