14.9.2016

Sýning | Týpískt í Gerðubergi


Mynd frá Leturverk, fyrstu sýningu hópsins á HönnunarMars 2016.

Laugardaginn 17. september opnar sýningin Týpískt, með listahópnum Tákn og teikn, í Borgarbókasafninu í Gerðubergi. Sýningin stendur til 23. október og er opin virka daga frá kl. 9-18 og um helgar frá kl. 13-16.

Á sýningunni Týpískt bregður m.a fyrir letri af ýmsum stærðum og gerðum. Handskrifað, tölvuritað, málað, krotað og párað með verkfærum eins og pennum, penslum, pappír, skurðarhnífum, tölvu, tússi eða hvaðeina sem nýtist til listsköpunar eða listrænnar tjáningar.

Verkin á sýningunni eru mestmegnis týpógrafísk, en einnig eru önnur myndverk, ný og eldri verk í bland, frá hópnum Tákn og teikn.

Í kynningu segir:

„Þegar við segjum að eitthvað sé týpískt þá er átt við eitthvað sem er dæmigert og segja má að það sé dæmigert fyrir listahópinn Tákn og teikn sem samanstendur af grafískum hönnuðum að heillast af letri eða týpógrafíu sem listformi. En týpógrafía er notað sem samheiti yfir leturfræði og í stafa- og leturgerð lýsir orðið týpa ákveðnum flokkum leturs. Týpógrafía kemur upplýsingum hins talaða orðs í myndrænt form.“



LIstahópurinn Tákn og teikn.

Listahópurinn Tákn og teikn skipa átta myndlistar- og hönnunarmenntaðar konur, þær Edda V. Sigurðardóttir, Elsa Nielsen, Friðrika Geirsdóttir, Helga Gerður Magnúsdóttir, Kristín Edda Gylfadóttir, Kristín Þorkelsdóttir, Sigríður Rún og Soffía Árnadóttir. Hópurinn var stofnaður fyrir ári síðan og hittist reglulega til að deila hugmyndum á skemmtilegum og faglegum forsendum, með það að markmiði að halda sýningar.

Fyrsta sýning hópsins „Leturverk” var haldin á Mokka á hönnunarmars 2016. Hópurinn er fjölbreyttur og aldursbil félaga breitt sem og reynsla þeirra. Stóra sameiginlega áhugamál hópsins er hönnun og list og að nýta tækifærin til sköpunar.

















yfirlit