18.5.2016

Hildur Yeoman sýnir á Listahátíð í Reykjavík



Hildur Yeoman sýnir á Listahátíð í Reykjavík í Lækningaminjasafninu, föstudaginn 3. júní, kl.20:00. Sýningin ber heitið Transcendence og er innsetning þar sem telft er saman hönnun, ljósmyndun og myndlist. Áhorfandanum er boðið að ganga inn í óræðan heim þar sem ólíkar listgreinar mætast.

Í kynningy segir:

„Á mörkum meðvitundar og meðvitundarleysis er staður, mitt á milli vöku og svefns. Þessi staður er heimili ofskynjana og martraða, en einnig bústaður ljúfra drauma og kyrrðar. Hann er heillandi og hefur hvoru tveggja tilhneigingu til að draga á tálar og verða að eftirsóknarverðum dvalarstað.

Í Transcendence er farið inn á mörk drauma og svefns og haldið er í ferðalag um þá handanveru sem er manninum hvoru tveggja kunnugleg og framandi í senn“

Hildur Yeoman,
fatahönnuður hefur verið óhrædd við að kanna nýjar nálganir í hönnun sinni. Hún sækir innblástur í sterkar upplifanir þar sem skynjun, táknmyndir, persónueinkenni, tónlist, myndlist og andrúmsloft leika stór hlutverk og tvinnast saman í nýja heima.


Hildur Yeoman, fatahönnuður.

Á opnun sýningarinnar 3. júní verður lifandi tónlist og gjörningar tengdir verkum Hildar.

Fatahönnuður: Hildur Yeoman
Ljósmyndari: Saga Sigurðardóttir
Myndlistarmaður: Daníel Björnsson
Vídjólistamaður: Máni Sigfússon
Tónlistarkona: Jófríður Ákadóttir
Danshöfundur: Valgerður Rúnarsdóttir

Viðburður á Facebook.

















yfirlit