18.4.2016

Tískusýning útskriftarnema í fatahönnun við LHÍ

 

Tískusýning útskriftarnema í fatahönnun við hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands fer fram í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsinu kl. 17:00 21. apríl.

Í kynningu segir: „Hin árlega tískusýning fatahönnunarnema við Listaháskóla Íslands er einn af hápunktum Útskriftarhátíðar skólans. Þar sjáum við afrakstur þriggja ára náms á sýningarpöllunum. Síðar verður hægt að sjá fatalínurnar í návígi á útskriftarsýningu BA nema í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi sem opnar 23. apríl og stendur til 8. maí.“

Útskriftanemar úr fatahönnun eru:

Björg Gunnarsdóttir
Guðrún Helga Kristjánsdóttir
Júlíanna Ósk Hafberg
Karún Herborg Guðmundsdóttir
Manuela Ósk Harðardóttir
Ólöf Sigríður Jóhannsdóttir
Sóley Jóhannsdóttir
Steinunn Eyja Halldórsdóttir
Una Valrun

Viðburður á facebook

#listahaskolinn

#útskriftarhátíð

#fatahönnunLHÍ

#icelandacademyofthearts
















yfirlit