17.9.2015

Yfirlitssýning á portrettverkum Kristínar Þorkelsdóttur


Mynd eftir Kristínu af Salóme systur hennar, sem ber titilinn Forseti alþingis.

Föstudaginn 18. september kl. 17 opnar sýning á verkum eftir Kristínu Þorkels­dóttur í Listasal Mosfellsbæjar.

Á sýningunni, sem ber yfirskriftina ÁSÝND samferðafólks á lífsfleyinu, er sjónum fyrst og fremst beint að portrettverkum Kristínar. Sýningin spannar allt frá eldri teikningum að nýjum verkum og einnig verða til sýnis skissubækur, dagbækur og vinnuteikningar.



Flestir þekkja þennan seðil, færri vita þó að hann er eftir Kristínu.

Kristín á langan feril að baki bæði sem grafískur hönnuður og sem myndlistarmaður. Eftir Kristínu liggur umfangsmikið safn grafískrar hönnunar og má þar nefna hönnun hennar á íslenskum peningaseðlum og íslenska vegabréfinu.

Auk þess hefur Kristín hannað fjöldann allan af vöruumbúðum, bókakápum og merkjum. Hún teiknaði merki Mosfellsbæjar árið 1968, það er tilvísun í sögnina um silfur Egils.

Sýningin stendur til 10. október. Sýningarstjóri er Birta Fróðadóttir.















yfirlit