24.6.2015

Alvar Aalto í Norræna húsinu

Sýning á hönnun Alvar Aalto sem finna má í Norræna húsinu í Reykjavík opnar þann 25. júní kl.17:00.

Þar er hönnunin sett í stærra samhengi annarra verka Aalto, auk valinna listaverka eftir norræna listamenn í eigu hússins.

Í kynningu segir:

„Norræna Húsið í Reykjavik er hannað af einum af merkustu arkitektum 20.aldarinnar, finnska arkitektinum Alvar Aalto. Aalto hannaði sem kunnugt er ekki einvörðungu byggingar, heldur einnig innréttingar, húsgögn, lampa, hurðarhúna og flest annað sem í byggingunum er, auk þess að skipuleggja umhverfi bygginga sinna með innblástur úr náttúru og landslagi á hverjum stað.“



Norræna húsið eftir Alvar Aalto

„Norræna Húsið er eitt af fáum byggingum Aaltos utan heimalands hans og þykir mikil perla af hans hálfu. Húsið er eitt af síðustu verkum Aalto og sérstakt að því leytinu að þar leiðir hann saman fagurfræði frá fyrstu skrefum sínum undir formerkjum hins alþjóðlega eða hvíta módernisma og fullþroskaða, persónulega nálgun með lífrænum formum og rými í staðbundinn eða ljóðrænan módernisma. Norræna Húsið er lítið meistaraverk í sjálfu sér, og sköpun þess er eitt fegursta sameiningartákn norræns samstarfs og menningar.“

Sýningin er opin til 29. ágúst.

www.nordichouse.is
















yfirlit