Laugardaginn 6. desember opnar Postulína sýninguna Snjókoma í Harbinger, sýningarrými við Freyjugötu 1. Snjókoma er postulíns-innsetning í 1000 þáttum sem hangir niður úr lofti gallerísins fram að jólum.
Fullkomlega samhverf svífa snjókornin til jarðar eftir að ísköld
háloftin hafa mótað þau. Við á jörðu niðri getum ekki annað en hallað
aftur höfðinu, haldið augunum opnum og jafnvel munni. Í vetrarstillum er
fátt fallegra en snjókorn sem virðast lifandi stutta stund, dansa saman
af himnum ofan, en hverfa síðan á svörtu malbiki eða í snjóhvítum
sköflum á jörðu niðri. Sagan segir að ekkert þeirra sé eins. Dularfull
háloftin útbúa þessar fullkomnu smíðar, form sem hægt er að bregða undir
smásjá og byggingareiningarnar mælast þá í míkrómetrum.
Fyrstu snjóar koma okkur ævinlega á óvart, rétt eins og við séum búin að
gleyma því hve hvít þessi ábreiða getur verið. Við viljum snerta, minna
okkur á kuldann sem kemur af himnum. Þetta hverfula byggingarefni vekur
ánægju, ævintýraþrá, stríðni og jafnvel listrænan metnað. Við tökum
okkur snjóinn í hönd og þrýstum honum saman milli fingra okkar. Úr verða
önnur form sem við viljum helst frysta en eru líka dæmd til að bráðna
og eyðast. Eftir stendur minningin um fyrsta snjóinn, þá hreinu upplifun
sem við finnum innra með okkur þegar við horfum á hann falla,
handfjötlum og mótum.
(texti: Guðni Tómasson)
Postulína er samstarfsverkefni
Guðbjargar Káradóttur leirkerasmiðs og
Ólafar Jakobínu Ernudóttur hönnuðar. Þær hafa starfað saman frá árinu
2011 og þróað postulínsmuni við góðan orðstír, heima og heiman. Sem dæmi
má nefna Jökla matarstellið en það sýndu þær í samvinnu við
ljósmyndarann Vigfús Birgisson á HönnunarMars s.l. vor.
Allir gripir Postulínu eru mótaðir í höndum á rennibekk, þar sem
hefðbundar og nútímalegar aðferðir eru leiddar saman.