2.9.2014

Sýning | Gagnvirkur veggur í Listasafni Reykjavíkur


Mojoko & Shang Liang | Gagnvirkur veggur/Reactive Wall, 2010.

Laugardaginn 6. september opnar sýning á verkinu Gagnvirkur veggur Í Listasafni Reykjavíkur. Verkið er eftir listamennina Stewe Lawler og Shang Liang og er gagnvirkt listaverk samsett úr 200 myndum frá popplist og dægurmenningu Asíu og Vesturlanda.

Steve Lawler sem gengur undir listamannanafninu Mojoko gerði grafíkina en Shang Liang sá um forritunina. Hljóðnemi er tengdur í verkið og geta sýningargestir talað, blístrað eða kallað í hann og myndirnar í verkinu breytast eftir hljómi eða hljóðstyrk.

stevelawler.com



Listasafn Reykjavíkur er opið daglega frá kl. 10:00 - 17:00 og fimmtudaga til kl. 20:00.
Sýningin er opin til 19. október.















yfirlit