15.8.2014

Ljósmyndasýning í Þjóðminjahúsinu af tísku og torfbæjum


Sýning á verkum sænska ljósmyndarans Lisen Stibeck stendur frá 15. - 22. ágúst í Þjóðminjasafninu. Sýningin nefnist Torfhús og tíska en fyrirsæturnar á ljósmyndnum eru í fatnaði eftir Steinunni Sigurðardóttur, fatahönnuð.


Myndirnar tók Stibeck á ferð sinni um landið sumarið 2013, við torfhús sem tilheyra húsasafni Þjóðminjasafnsins. Með myndum vill Lisen Stibeck sýna einstakt samspil íslenskrar náttúru, menningararfs og tísku.

Um Ísland segir Lisen Stibeck: „Ef land væri ljóð, þá væri það land Ísland " en hún heillaðist af landinu fyrir mörgum árum og hefur myndað víða.



Sýningin er á Torgi Þjóðminjasafnsins sem er opið alla virka daga frá 10:00 - 17:00.















yfirlit