19.6.2014

Ummerki sköpunar – Úrval nýrra verka úr safneign Hafnarborgar



Ný sýning á völdum verkum úr safneign Hafnarborgar verður opin frá 21. júní til 24. ágúst 2014. Sýningin kynnir aðföng síðustu tíu ára en verkin eru unnin á árunum frá 1952 – 2014.

Yfirskrift sýningarinnar er Ummerki sköpunar og beinir sjónum að safninu sem stað þar sem afrakstur sköpunar listamanna er varðveittur og honum miðlað. Ólíkir straumar og stefnur koma við sögu en sýningin er einskonar ferðalag um list samtímans, allt frá formfestu módernismans í verkum Harðar Ágústssonar og Eiríks Smith frá árinu 1952 til nýrra leikrænna myndbandsverka þeirra Ilmar Stefánsdóttur og Sigurðar Guðjónssonar.

Verkin eru eftir marga af þekktustu listamönnum landsins en einnig nokkra erlenda listamenn sem tengst hafa safninu ýmist með sýningum eða dvöl í gestavinnustofu safnsins. Tæplega þrjátíu listamenn eiga verk á sýningunni en þeirra á meðal eru Davíð Örn Halldórsson, Georg Guðni, Guðrún Kristjánsdóttir, Hildur Bjarnadóttir, Hreinn Friðfinnsson, Ólafur Elíasson og Elías Hjörleifsson, Sirra Sigrún Sigurðardóttir og Stefán Jónsson. Jafnframt eru sýnd verk eftir Rúnu (Sigrún Guðjónsdóttir) en hún færði safninu nýlega rúman tug verka að gjöf.

Sýningin veitir innsýn í safneign sem nú telur rúmlega 1400 listaverk og vaxið hefur hægt og rólega á síðari árum en á rætur sínar að rekja til listaverkasafnaranna Sverris Magnússonar og Ingibjargar Sigurjónsdóttur. Þau lögðu grunninn að Hafnarborg með því að færa Hafnarfjarðarkaupstað hús sitt og listaverkasafn að gjöf. Í Sverrissal hefur verið sett upp önnur sýning með málverkum frá fyrrihluta 20. aldar sem flest eru hluti af stofngjöf þeirra hjóna.

Fimmtudaginn 26. júní kl. 20 annast Ólöf K. Sigurðardóttir safnstjóri leiðsögn um sýninguna Ummerki sköpunar en í Hafnarborg er opið til kl. 21 alla fimmtudaga.

Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu safnsins www.hafnarborg.is

Forsíðumynd er af verki Ólafs Elíassonar og Elíasar Hjörleifssonar.
Mynd í frétt er af verki Harðar Ágústssonar.















yfirlit