26.2.2014

Sýningarlok í Spark Design Space á Scintilla speglum



Linda Árnadóttir fathönnuður og hönnuður Scintilla hefur hingað til lagt áherslu á textílvörur fyrir heimili en kynnir nú til sögunnar nýjan efnivið, spegla. Sýning á nýjum speglum Scintilla hefur staðiði í Sparks Design Space síðan 21. nóvember og verða sýningarlok á föstudaginn 28. febrúar.

Sérstaða speglanna byggir á framsæknum grafískum munsturheimi sem hönnuður og stofnandi fyrirtækisins, Linda Árnadóttir, hefur þróað síðastliðin 15 ár. Speglarnir eru framleiddir hjá Glerverksmiðjunni Samverki á Hellu, elstu starfandi glerverksmiðju landsins.















yfirlit