27.6.2013

Fjölskylduleiðsögn í Hönnunarsafni Íslands á safnadaginn




Boðið verður uppá leiðsögn og léttan fróðleik á íslenska safnadaginn í Hönnunarsafni Íslands, sunnudaginn 7.júlí.

Fjölskylduleiðsögn hefst kl. 14:30 um yfirstandandi sýningu, Óvænt kynni, í fylgd Þóru Sigurbjörnsdóttur fulltrúa safneignar. Í leiðsögninni mun Þóra flétta inn frásögnum af því starfi sem fram fer á bak við tjöldin í Hönnunarsafninu og varpa ljósi á þá vinnu sem í gangi er á heimildaöflun um íslenska hönnunarsögu.

Aðgangur er ókeypis og opið frá kl. 12- 17.

Nánar um sýninguna Óvænt kynni má finna á síðu Hönnunarmiðstöðar hér.
Nánar um íslenska safnadaginn á Hönnunarsafni Íslands má finna hér.















yfirlit