17.8.2013

Sýning | Líffærafræði leturs



Í Spark Design Space, Klapparstíg 33 er sýning á verkum Sigríðar Rúnar Kristinsdóttur sem á dögunum hlaut hin virtu nemendaverðlaun frá Art Directors Club of Europe, fyrir bókina Líffærafræði Leturs eða Anatomy of letters. Þar er sýnd fjörutíu og eitt veggspjald af jafn mörgum stöfum. Veggspjöldin eru til sölu stök eða öll saman í möppu. Sýningin opnaði þann 27. júní og stendur til 30 september.


Líffærafræði leturs var upphaflega útskriftarverkefni Sigríðar Rúnar í grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands árið 2012. Þá tók hún fyrir sjö handskrifaða bókstafi og glæddi þá lífi með ímyndunaraflinu, gaf þeim innri líffæri ásamt hegðunamynstri og sögu líkt og um lífverur væri að ræða.

Fyrir sýninguna í Sparki hefur Sigríður Rún útfært beinabyggingu fyrir alla stafi íslenska stafrófsins. Útfærslan er byggð á rannsóknum Sigríðar Rúnar á beinabyggingu dýra og manna. Hún notast aðallega við fuglabein, forneðlubein og bein fornra fugla. Handskriftin er unnin upp úr einu elsta varðveitta handriti Íslendinga, Egils sögu Skallagrímssonar frá um 1250.

Orðið anatomy eða líffærafræði er notað til að útskýra líkamsbyggingu lífvera en þekkist einnig í leturfræði og er þá notað til að útskýra uppbyggingu bókstafa. Sigríður Rún vinnur bókstaflega út frá þessum sameiginlega fleti annars ólíkra fræða með það að markmiði að vekja áhuga á bókstöfum sem fyrirbærum frekar en táknum.

Í framsetningu letursins notast Sigríður Rún við myndmál vísinda sem við þekkjum og treystum að sé notað til fræðslu og upplýsinga um staðreyndir. Beinagrind í glerboxi líkt og á náttúrugripasafni; teikningar, rannsóknir og upplýsingar í bók í gömlum kennslubókastíl og veggspjöld í sama anda Fyrir vikið verður framsetning Sigríðar Rúnar svo sannfærandi að það ruglar okkur í ríminu.

Sigríður Rún segir um verkið og framsetninguna “Ímyndunaraflið er máttur mannsins til að skapa eitthvað nýtt. Sumir hafa greiðari aðgang að heimi ímyndunaraflsins en aðrir en verkefnið sveigir tilurð bókstafa þannig að það myndast snertiflötur sem allir geta skoðað. Þegar mörkin eru orðin óljós reynir á hvort áhorfandinn höndli sköpunarverkið eða ekki. Þeir sem opna sig og leyfa sér að koma með mér inn í þennan heim geta notið hans jafn vel og ég. Hinir sjá fallegar myndir og bók sem minnir þá á gamla tímann en skilja ekki endilega inntakið.”

Sýningin í Sparki samanstendur af fjörutíu og einu veggspjaldi fyrir jafn marga stafi. Veggspjöldin eru til sölu stök eða öll saman í möppu. Þau eru gerð í ótakmörkuðu upplagi líkt og eðli bókstafanna sjálfra.

Kennarar og fagfólk sem er víðsýnt og reiðubúið að miðla eru oftar en ekki kveikjan að góðum verkefnum nemenda og ómetanlegir áhrifavaldar. Í þessu verkefni var það gestakennari við Listaháskóla Íslands Lajos Major frá Ungverjalandi sem kveikti neistann og Guðvarður Már Gunnlaugsson handritafræðingur hjá Árnastofnun sem dýpkaði skilninginn og glæddi áhugann á að kafa dýpra.

LÍFFÆRAFRÆÐI LETURS
27.06 – 30.09

Opið 10.00 - 18.00, laugardaga 12.00 - 16.00, lokað á sunnudögum.
Nánari upplýsingar á sparkdesignspace.com















yfirlit