24.5.2013

Opnun | Huginn Þór Arason og Andrea Maack: Kaflaskipti



Sýningin hverfist um ilm sem ætlað er að fanga kjarna listasafns fjarlægrar framtíðar. Innsetning Andreu og Hugins Þórs er í formi sýningarsalar sem á að varpa ljósi á ákveðið tímabil. Þau leitast við að sýna ilminn í þrívíðu, byggingarlistarlegu og sveigjanlegu formi. Þannig undirstrika þau eiginleika ilms en erfitt getur verið að henda reiður á, hann er tímabundinn og ber með sér hugrænt andrúmsloft.

Ilmurinn sem um ræðir er einstakur og sérstaklega þróaður fyrir sýninguna í Hafnarhúsi. Sýningarstjórinn og listamennirnir áttu í samræðum um framtíð listasafna. Niðurstaða þeirra var orðalisti sem var sendur til sjálfstæðs ilmvatnsframleiðanda í Frakklandi. Verkefni framleiðandans fólst síðan í því að túlka lykilorðin á listanum og umbreyta þeim í lyktarupplifun. Andrea og Huginn Þór nota ilminn sem uppsprettu vangaveltna um eðli innsetningar sinnar.

Kaflaskipti byggir á reynslu Andreu sem myndlistarmanns sem vinnur með ilm í list sinni en einnig áhuga Hugins Þórs á að umbylta hlutverki sýningarsalarins. Andrea og Huginn Þór vinna nú saman í fyrsta sinn. Ólíkt hefðbundnum sýningarsal sem birtir ákveðið tímabil, er „framtíðarsalurinn“ þeirra ekki hugsaður sem dæmi um vissa stíltegund, heldur afar persónuleg túlkun á gildismati og smekk annars tímaskeiðs. Sýningarsalurinn er heldur ekki hugsaður sem fullkomlega einangrað tímahólf. Um leið og framtíðarsalurinn verður virkt rými í nútímanum setja listamennirnir fram ráðgátu um merkingu þess að taka þátt í siðvenjum innan óbundins tíma og rýmis.

Sýningarstjóri: Shauna Laurel Jones.

Sýningin er hluti af dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2013 og stendur til 1. september.

Dagskrá:
Laugardag 25. maí kl. 16
Hafnarhús – Kaflaskipti
Opnun

Sunnudag 26. maí kl. 15
Hafnarhús – Kaflaskipti
Ilmsmiðja fyrir ungt fólk sem unnin er í tengslum við sýninguna.

Sunnudag 16. júní kl. 15
Hafnarhús - Kaflaskipti
Sýningarstjóra- og listamannaspjall - Shauna Laurel Jones, sýningarstjóri ræðir við Huginn Þór Arason og Andreu Maack, myndlistarmenn.


Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús
er opið alla daga frá kl. 10 - 17 og fimmt. til kl. 20.















yfirlit