25.4.2013

Handverk og Hönnun í Ráðhúsinu 16.-20. maí



Sýning á íslensku handverki, listiðnaði og hönnun verður haldin í Ráðhúsi Reykjavíkur dagana 16. til 20. maí 2013 verður haldin  Gróskan og fjölbreytnin er mikil sem fyrr og að þessu sinni sýna rúmlega fjörutíu aðilar verk sín auk þess sem Myndlistarskólinn í Reykjavík verður með kynningu á námi í mótun, textíl og teikningu.

Þetta er í níunda sinn sem HANDVERK OG HÖNNUN stendur fyrir og skipuleggur þennan viðburð. Það er óhætt að segja að sýningunni hafi verið vel tekið undanfarin ár og hefur aðsóknin alltaf verið mjög mikil. Þetta er einstakt tækifæri fyrir alla að kynna sér fjölbreytt íslenskt handverk, listiðnað og hönnun á einum stað. Það eru listamennirnir og hönnuðirnir sjálfir sem kynna vörur sínar á sýningunni.

Í fyrsta sinn er nokkrum þátttakendum boðið að vera með á sýningunni í Ráðhúsi Reykjavíkur endurgjaldslaust. HANDVERK OG HÖNNUN sótti um styrk til borgarsjóðs Reykjavíkur í október 2012 til að geta boðið einstaklingum sem eru að gera spennandi hluti og hafa aldrei tekið þátt í sýningunni að vera með.

Reykjavíkurborg styrkir þetta verkefni og var fimm þátttakendum, sem valdir voru af fagaðilum, boðið að vera með að þessu sinni. Hægt er að skoða kynningu og myndir frá öllum þátttakendum á heimasíðu HANDVERKS OG HÖNNUNAR: www.handverkoghonnun.is/islenska/radhusid















yfirlit