22.5.2013

Sýningin Tölt opnar í Felleshus



Listasýningin Tölt opnar í Felleshus, sendiráði Norðurlandanna í Berlín þann 15. maí n.k. Sýningin er upphitun fyrir Heimsmeistaramót íslenska hestsins í Berlín í ágúst 2013 en um er að ræða listasýningu helgaða íslenska hestinum í gegnum ólík listform, eins og ljósmyndun, skúlptúr, myndbandsverk, hreyfimyndir, hönnun og tísku. Tölt stendur til 2. júlí 2013.

Íslenski hesturinn ber á baki sér ríkulega menningararfleifð og er stór hluti þess hvernig Íslendingar skilgreina sig sem þjóð. Hesturinn er gegnheilt einkenni þjóðar- arfsins - hvort sem hann er í lausagöngu á hálendinu, taminn til að vinna verkin og bera okkur á bakinu eða fluttur á nýjan stað þar sem hann skeiðar í ókunnu umhverfi. Hesturinn þjónar einnig sem djúpstæð tenging við náttúru landsins og er óendanleg uppspretta andagiftar, sem brýst út í menningarsögu Íslands, skáldskap og samtímalist.

Íslenskum samtímalistamönnum og hönnuðum hefur verið gefinn laus taumur til að skapa og sýna listaverk sem innblásin eru af íslenska hestinum; fegurð hans og þokka; litum og örlögum. Listamennirnir koma skynjun sinni og sýn, innblásinni af íslenska hestinum til skila með margvíslegu móti í mismunandi efnivið.

Þátttakendur í sýningunni: Hrafnkell Birgisson - Gígja Einarsdóttir - Kristín Garðarsdóttir - Ásta Guðmundsdóttir - Dögg Guðmundsdóttir - Una Lorenzen - Rut Sigurðardóttir - Spessi - Benni Valsson - Andersen & Lauth - Erna Einarsdóttir - Jör by Guðmundur Jörundsson - Mundi

Tekið verður ofan fyrir hinum þekkta listamanni Birgi Andréssyni (1955-2007), fulltrúa Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 1995. Á sýningunni verða verk þar sem Birgir kannar tengsl sjónrænnar skynjunar og tungumálsins með munnlegum hestalýsingum.

Sýningin er opin frá 16. maí til 2. júlí 2013

Opnunartímar eru eftirfarandi:

Mán. – föst. kl. 10-19
Lau.-sunn. kl. 11-16

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Felleshus, hér.

Ljósmyndir: Gígja Einarsdóttir (stærri) og Benni Valsson (minni/„thumbnail“)















yfirlit