15.5.2012

Vorsýning Myndlistaskólans á Akureyri



VORSÝNING 2012
Myndlistaskólinn á Akureyri.
Opin dagana 17. - 20. maí kl. 13 - 17
Sýningarstaður: Kaupvangsstræti 16


Hin árlega Vorsýning Myndlistaskólans á Akureyri verður opnuð fimmtudaginn 17. maí í húsnæði skólans Kaupvangsstræti 16.


Sýnd verða verk nemenda fornámsdeildar, listhönnunar- og fagurlistadeildar. Þar gefur að líta sýnishorn af því helsta sem nemendur í frjálsri myndlist og grafískri hönnun hafa verið að fást við á þessu skólaári.

Alls stunduðu fimmtíu og átta nemendur nám í dagdeildum skólans og af þeim munu tuttugu og sex brautskrást frá skólanum að þessu sinni. Einnig verða sýnd verk eftir nemendur sem voru á barnanámskeiðum á vorönn.

Allir eru hjartanlega velkomnir í Myndlistaskólann á Akureyri sýningardagana.

Opnunartími kl. 13 til 17 og lýkur sýningunni sunnudaginn 20. maí.

www.myndak.is
www.facebook.com/myndak

















yfirlit