26.1.2012

Sýning | Tizka, kjólar og korselett

 
 
 
 
 
Þjóðminjasafn Íslands,
Bogasalur. 28. janúar- 28. ágúst 2012


Sýningin Tízka, kjólar og korselett opnar í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands laugardaginn 28. janúar kl. 15. Á sýningunni eru svokallaðir módelkjólar sem saumaðir voru eftir pöntun og ýmsir fylgihlutir eins og skór, hattar, hanskar og undirföt.

Kjólarnir eru listaverk, sumir látlausir og einfaldir aðrir tilkomumiklir og glæsilegir, kjólar sem pössuðu við konuna og tilefnið.

Sýningarhöfundur er Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður, en með einstakri innsýn sinni í tískustrauma 20. aldar tekst henni að glæða kjólana á sýningunni nýju lífi.

Sýningarhöfundur: Steinunn Sigurðardóttir
Hönnun sýningar: Páll Hjaltason og Steinunn Sigurðardóttir
Grafísk hönnun: Ámundi Sigurðsson
Fagstjóri sýninga: Ágústa Kristófersdóttir
Ritstjóri sýningarskrár: Bryndís Sverrisdóttir
Teikingar: Laufey Jónsdóttir

Nánari upplýsingar um sýninguna er að finna á vef Þjóðminjasafns Íslands















yfirlit