29.9.2011

Sýning | Goddur

Sýning á 32 veggspjöldum eftir Guðmund Odd Magnússon, sem er betur þekktur sem Goddur, opnaði á Alþjóðlegu hönnunarvikunni í Peking á dögunum.

Sýning Godds er yfirlit veggspjalda sem hann hannaði á 15 ára tímabili, þ.á.m. eru samstarfsverkefni hans við Bjarna H. Þórarinsson og aðra listamenn. Sýningin Godds er haldin í nýja hönnunarhverfinu í Peking, 751, sem kennt er við brautarlínuna sem flutti m.a. kol og aðföng inn í iðnaðarhverfi sem nú hefur verið hreinsað upp og breytt í nýstárlega miðstöð skapandi greina.

Hönnuðir og listamenn frá ýmsum löndum sýna á sömu slóðum m.a. frá Hollandi, Bretlandi, Austurríki, Ítalíu. Ástralíu og Bandaríkjunum.

Hönnunarvikan í Peking hófst 26. september og henni lýkur 3. október. Markmið hátíðarinnar er að skapa borginni sérstöðu í hönnunargeiranum og auka alþjóðlega samvinnu á þessu sviði.

Goddur er prófessor í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands og starfar auk þess sem grafískur hönnuður og myndalistalistamaður. Nánar má kynna sér efni og umfjöllun á vefsíður hátíðarinnar, www.bjdw.org.

Þetta er í annað sinn sem sendiráð Ísland í Kína vinnur með Alþjóðlegu hönnunarvikunni í Peking sem árlega dregur að sér marga af þekktustu hönnuðum heims. Fjöldi sýninga er haldinn af þessu tilefni víðs vegar um borgina.

Nánari upplýsiongar veita: Guðmundur Oddur Magnússon, goddur@lhi.is og Hafliði Sævarsson, haflidi@mfa.is.

















yfirlit