27.5.2011

Sýningalok og leiðsögn | Hönnunarsafn Íslands

FRÉTTATILKYNNING

Sýningum lýkur í Hönnunarsafni Íslands um helgina – leiðsagnir á laugardag kl. 15.

Sunnudaginn 29. maí lýkur sýningu Hönnunarsafns Íslands á húsgögnum Gunnars Magnússonar húsgagnahönnuðar. Sama dag lýkur sýningu á verkum Hrafnhildar Arnardóttur, Á gráu svæði.

Sýningarnar höfða til fjölbreytts hóps unnenda íslenskrar hönnunar og menningarsögu og hafa verið mjög vel sóttar.

Á laugardaginn kl. 15 mun Ásdís Ólafsdóttir sýningarstjóri ganga með Gunnari um sýninguna á verkum hans og gefst gestum því kærkomið tækifæri til að hlusta á ýmsan fróðleik um íslenska húsgagnasögu og feril Gunnars, en hann er einn okkar afkastamesti húsgagna- og innanhússhönnuður. Í framhaldi af leiðsögn Ásdísar mun Harpa Þórsdóttir forstöðumaður Hönnunarsafnsins ganga um sýningu Hrafnhildar og miðla ýmsum fróðleik um það sem þar ber fyrir augu en Hrafnhildur hlaut nýverið hin virtu norrænu textílverðlaun fyrir vinnu sína sem verða afhent í Svíþjóð síðar á þessu ári.

Verið velkomin!

www.honnunarsafn.is

Hönnunarsafn Íslands
Garðatorgi 1
Garðabæ
Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 12-17















yfirlit