17.1.2011

Sýning | Þetta vilja börnin sjá



Í fréttatilkynningu frá Menningarmiðstöðinni Gerðubergi segir:

Karl Jóhann Jónsson hlaut Dimmalimm – íslensku myndskreytiverðlaunin 2010 fyrir bókina Sófus og svínið sem gefin er út af Námsgagnastofnun.

Í dómnefndinni voru Aðalsteinn Ingólfsson, fulltrúi Gerðubergs, Bryndís Loftsdóttir sem er fulltrúi Eymundsson og Kalman le Sage de Fontenay, fulltrúi Myndstefs.

Aðalsteinn Ingólfsson sagði m.a. í rökstuðningi sínum: Stundum gleymist að barnabækur eru ekki einskær afþreying og skemmtun fyrir smáfólkið: þær hafa einnig fræðslugildi. Sú bók sem hlýtur Dimmalimm-myndlýsingarverðlaunin í ár hefur eiginlega töluvert meira fræðslugildi en umfang hennar ber með sér. Mynda-og textahöfundur hennar, Karl Jóhann Jónsson, er myndlistarmaður og myndlistarkennari. Verðlaunabók hans, Sófus og svínið, sem gefið er út af Námsgagnastofnun, er tilraun til að vekja áhuga yngstu nemenda á myndlist og hjálpa þeim að njóta hennar. Söguhetjan Sófus málar fyndin tilbrigði um andlitsmyndir eftir marga frægustu listamenn sögunnar, en þær eru æði litaðar af nærveru aðstoðarmannsins, svínsins Konráðs. Í bókinni má síðan bera saman örmyndir af frummyndunum og útleggingar Sófusar, og klykkt út með „Umræðupunktum“ fyrir börn, sem jafnvel sjóaðir listunnendur hefðu gagn af að kynna sér, til að mynda um tilgang og réttmæti þess að breyta myndum annarra eftir eigin höfði. Allt kemst þetta til skila, þótt brot á bókinni verði að teljast í naumara lagi miðað við ásetning höfundar. Utan bókar og í fullri stærð eiga „paródíur“ Karls Jóhanns síðan erindi við langtum fleiri en smáfólkið; raunar vildi ég gjarnan sjá sérstaka sýningu á þeim öllum. Í leiðinni get ég upplýst að uppáhaldsmynd mín í bókinni er „svínslega“ sjálfsmyndin af Fridu Kahlo.

Eftirtaldir listamenn hafa áður hlotið Dimmalimm verðlaunin:
2009 Ragnheiður Gestsdóttir fyrir bókina Ef væri ég söngvari
2008 Kristín Ragna Gunnarsdóttir fyrir bókina Örlög guðanna sem skrifuð er af Ingunni Ásdísardóttur
2007 Sigrún Eldjárn fyrir bókina Gælur, fælur og þvælur
2006 Björk Bjarkadóttir fyrir bókina Amma fer í sumarfrí
2005 Áslaug Jónsdóttir fyrir bókina Gott kvöld
2004 Áslaug Jónsdóttir fyrir bókina Nei, sagði litla skrímslið
2003 Brian Pilkington fyrir bókina Mánasteinar í vasanum
2002 Halla Sólveig Þorgeirsdóttir fyrir bókina Engill í Vesturbænum sem skrifuð er af Kristínu Steinsdóttur

Á sýningunni Þetta vilja börnin sjá! í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi má sjá þær bækur sem kepptu til verðlaunanna að þessu sinni.

Starfsfólk Gerðubergs og Borgarbókasafnsins munu bjóða 8 ára skólabörnum upp á skemmtilega dagskrá á sýningartímabilinu þar sem þau fá að skoða sýningarnar Þetta vilja börnin sjá! og Ormurinn ógnarlangi og taka þátt í spennandi leikjum á bókasafninu. Einnig er boðin leiðsögn um sýningarnar fyrir aðra aldurshópa í samráði við starfsfólk Gerðubergs.

gerðuberg.is

.

















yfirlit