26.8.2010

Sýningarlok | Mupimup

 
 
 
Laugardaginn 14. ágúst var opnuð sýning Mupimup í Sláturhúsinu á Egilsstöðum í tengslum við bæjarhátíðina Ormsteiti. Með þessari sýningu var formlega opnað fyrir sölu á Mupimup hönnun. Sýningunni lýkur á sunnudaginn 29. ágúst.  

Mupimup er lítið hönnunarstúdíó sem var stofnað árið 2008.  Þetta er samstarf tveggja hönnuða, sem eru þau Zdenek Patak (grafískur hönnuður) og Rósa Valtingojer (textíl- og keramikhönnuður). Saman hanna þau vörur úr hlutum og efni sem tapað hefur verðgildi sínu.

Eins og stendur eru þau að vinna úr efni eins og PET, plexígleri og fatnaði. Þetta efni nota þau í ljósa- og textílhönnun. Hluti af hönnunarvinnunni fer fram í samstarfi við aðra listamenn, hönnuði og vini.  

Rósa og Zdenek eru búsett á Stöðvarfirði og þar eru starfsstöðvar Mupimup. Rósa er fædd og uppalin á staðnum en Zdenek fluttist þangað í byrjun árs 2007 frá Prag í Tékklandi, þar sem hann stundaði nám við Hönnunar og Listaháskólann AAAD. Þetta verkefni er tilraun þeirra til atvinnusköpunar í þorpinu, þar sem litla sem enga vinnu er að hafa.  Þá eru þau ekki aðeins að hugsa um að skapa sjálfum sér atvinnu.  Þau horfa til framtíðar og sjá þann möguleika að þetta verkefni geti vaxið og dafnað og fleira fólk komi að þessu.        

Tvímenningarnir í Mupimup eru mikið að vinna með og rannsaka hönnun í samhengi við umhverfið. Þau vilja miðla því og sýna fram á ábyrgðina sem hönnuðir eiga að axla gagnvart umhverfinu. Af þessum ástæðum er þeim Rósu og Zdenek boðið til Konstfack, listaháskólans í Stockholm, til að halda viku námskeið sem ber yfirskriftina Sustainable design.

Þau Rósa og Zdenek láta þó ekki þar við sitja því þau hafa fleiri verkefni í vinnslu. Í sumar stofnuðu þau ásamt fjórum vinum sínum lítið kaffihús í Gallerí Snærós á Stöðvarfirði. Þau nefndu þetta verkefni Stofnsjóður kaffi- og menningarmiðstöðvar Stövarfjarðar. Þar var boðið upp á hágæða kaffi frá El Salvador. Kaffið var ristað á staðnum og var því alltaf ferskt. Það var framreitt eftir kúnstarinnar reglum úr alvöru expressovél. Viðskiptavinirnir gátu svo greitt fyrir kaffið með frjálsu framlagi. Þetta verkefni hlaut vægast sagt góðar viðtökur. Það þróaðist svo þannig að þessi félagsskapur sexmenninganna auk annarra er nú að vinna í því að fá frystihúsið á Stöðvarfirði undir Samfélags- og menningarmiðstöð. Húsið er um 3000 m2 og stóð til að rífa það, en engin vinnsla hefur verið þar undanfarin ár. Þessi félagsskapur er nú búinn að fylla þessa 3000 m2 af góðum hugmyndum, sem lauslega ágiskað gætu skapað um 15 manns atvinnu og þar fyrir utan fyllt þennan svefnbæ af lífi og menningu. 

Af þessum hugmyndum má nefna:  Kaffihús, litlar verslanir og markaði, félagsrými, listamannaíbúðir, opnar vinnustofur og hljóðver, Mupimup vinnustofu og verslun.  Þetta verkefni er nú á byrjunarstigi og mikil vinna framundan, en þetta væri óneitanlega það besta sem gæti komið fyrir þetta litla sjávarþorp sem liggur nú í dvala og á sífellt í vök að verjast.  Þar hefur leiðin aðeins legið niður á við síðan Samherji lokaði fiskvinnslustöð sinni árið 2005. Sífellt er verið að skera niður þjónustu í bænum, nú síðast var ákveðið að loka útibúi Landsbankans og útibúi Íslandspósts.   

Mupimup, er að hefja Eco-hönnunarvinnslu á Stöðvarfirði.  Svo er það félagsskapurinn sem beitir sér fyrir því að bjarga frystihúsinu, sem er svo táknrænt fyrir atvinnulíf staðarins.  Þessi tvö öfl gefa Stöðvarfirði von um bjartari framtíð. 

mupimup.net















yfirlit