25.5.2010

Sumarsýning Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi

Miðvikudaginn 26. maí kl. 20.00 verða opnaðar í Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi, sýningar listakvennanna Steinunnar Sigurðardóttur, hönnuðar og Hildar Bjarnadóttur, myndlistamanns.

Sýning Hildar ber heitið ENDURGJÖF en Steinunn nefnir sína sýningu DRESS COLLAGE.

Við athöfnina mun söngkonan Alexandra Chernyshova, taka lagið. Einnig munu listakonurnar ræða við gesti og þjóðminjavörður Margrét Hallgrímsdóttir opna sýninguna.   

Aðgangur er ókeypis á opnunina og allir hjartanlega velkomnir. Kaffi og kleinur í boði safnsins.  

Heimilisiðnaðarsafnið verður opið alla daga frá 1. júní til 31. ágúst frá kl. 10.00 - 17.00   

Sýningin er styrkt af Menningarráði Norðurlands vestra.

Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi
















yfirlit