8.5.2010

Expo 2010 í Shanghai

 
 
Laugardaginn 1. maí sl. var íslenski skálinn á heimsýningunni EXPO 2010 í Shanghai opnaður formlega. Kristín A. Árnadóttir sendiherra Íslands í Kína, Pétur Ásgeirsson formaður framkvæmdastjórnar, Hreinn Pálsson framkvæmdastjóri íslenska skálans og Páll Hjaltason arkitekt og hönnuður íslenska skálans tóku vel á móti fyrstu gestum skálans með íslenskum gjöfum.

Verkefnið hefur farið vel af stað og Ísland tók þátt í svokallaðri prufuopnun EXPO svæðisins sem fram fór í lok apríl. Naut íslenski skálinn mikilla vinsælda og tók starfsfólk hans á móti 22.000 gestum á fjórum stuttum opnunardögum. Þá hefur íslenska þátttakan hlotið mikla umfjöllun í kínverskum fjölmiðlum síðastliðna mánuði.

Þátttaka Íslands á EXPO leggur áherslu á að kynna Ísland sem áfangastað fyrir ferðamenn, hátækni lausnir á sviði jarðhita, íslenskt hugvit og að rækta pólitísk samskipti við Kína. Samstarfsaðilar úr íslensku viðskiptalífi eru nú þegar á sjöunda tug og koma þeir til með að nýta sér aðstöðu og/eða þjónustu skálans með einum eða öðrum hætti.

Verkefnið er samstarfsverkefni utanríkisráðuneytisins, Orkuveitu Reykjavíkur, Landsvirkjunar, Geysis Green Energy, Iceland Spring, Bláa Lónsins og Icelandair. Að auki koma um 20 opinberir aðilar, fyrirtæki, samtök og stofnanir að skipulagi verkefnisins.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu verkefnisins www.expo2010.is eða hjá Unni B. Vilhjálmsdóttur, kynningarstjóra verkefnisins, unnur@expo2010.is.















yfirlit