20.4.2010

Formleikur Sýning



María Manda umbúðahönnuður opnar sýningu á Skörinni hjá HANDVERKI OG HÖNNUN, Aðalstræti 10 sem hún kallar Formleikur.  

Sýningin verður opnuð föstudaginn 23. apríl kl.16.00.  

Á sýningunni tekur María Manda umbúðaformið úr sínu hversdagslega hlutverki inn í listrænt umhverfi og breytir tilgangi þess á mörkum notagildis og skúlptúrs.    

Sýningin stendur frá 23. apríl til 11. maí. Opið alla daga frá 9-18 og helgar 12-17   Allir velkomnir

www.mmhonnun.is















yfirlit