24.2.2010

Íslensk samtímahönnun í Dansk Design Center



Sýningin Íslensk samtímahönnun - húsgögn, vöruhönnun og arkitektúr opnar í hinni virtu hönnunarmiðstöð Dana, Dansk Design Center föstudaginn 26. febrúar 2010. Sýningin stendur til 18. apríl 2010.
 
Dansk Design Center er hönnunarmiðstöð sem leggur höfuðáherslu á atvinnulífið og hvernig það getur nýtt sér hönnun í tengslum við nýsköpunarferli og viðskiptaþróun. Það er því einstakt tækifæri fyrir Hönnunarmiðstöð Íslands að vera í samstarfi við Dansk Design Center með íslenska hönnun og arkitektúr.

  
Sýningin i Dansk Design Center

Verkefnið er liður í því markmiði Hönnunarmiðstöðvar Íslands að íslensk hönnun og arkitektúr verði órjúfanlegur hluti af hinum norrænu hönnunarþjóðum sem notið hafa mikillar virðingar alþjóðlega um árabil. Um leið og unnið er að því langtímamarkmiði að auka útflutningstekjur af íslenski hönnun og arkitektúr erlendis. Hér er því augljóslega um einstakt tækifæri að ræða fyrir íslenska hönnun og arkitektúr og er liður í markvissri kynningu og markaðssetningu á íslenskri hönnun innanlands sem utan.


   
Ljósmyndir frá sýningunni sem var fyrst sett upp á Listahátíð í Reykjavík á Kjarvalsstöðum 2009.
Ljósmyndari: Ingvar Högni Ragnarsson


Sýningunni er ætlað að vera spegill þess sem telja má á einn eða annan hátt gæði í íslenskri hönnun undanfarin ár. Áherslan er á góðar hugmyndir sem hafa þroskast af faglegum metnað, alvöru og skynsemi; hugmyndir sem eru unnar til enda í anda hugsunarháttar sem vert er að setja á oddinn í dag. Markmiðið er að árétta gildi góðrar hönnunar og öflugs hugvits fyrir mannlegt samfélag - verðmæti til að virkja til framtíðar. Sýningarstjóri er Elísabet V. Ingvarsdóttir.  

Sýningin er farandsýning og hefur að geyma verk um 20 hönnuða sem eru valin með það í huga að eiga erindi ytra til frekari kynningar, sölu eða framleiðslu, en nú sem aldrei fyrr er brýnt að vera sýnileg í alþjóðlegu samhengi og styrkja erlend menningar- og viðskiptatengsl. Frá Danmörku fer sýningin til Shanghai í Kína þar sem hún verður sett upp í tengslum við þátttöku Íslands á Expó í september. Stefnt er að því að hún fari til fleiri Norðurlanda í kjölfarið.



Sýningin er samstarfsverkefni Hönnunarmiðstöðvar Íslands, Dansk Design Center, Utanríkisráðuneytis, Mennta- og menningarmálaráðuneytis, Iðnaðarráðuneytis, Sendiráðs Íslands í Danmörku, Útflutningsráðs Íslands og Hönnunarsjóðs Auroru. Icelandair og Reykjavíkurborg styrkja kynningarborða utan á húsakynnum Dansk Design Center í miðbæ Kaupmannahafnar. Sýningin var fyrst sett upp á Listahátíð í Reykjavík í Listasafni Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum 2009.

Sýningarstjóri: Elísabet V. Ingvarsdóttir  
Sýningarhönnun: Kurtogpí í samstarfi við Atelier Atli Hilmarsson
 

Hönnuðir og verk á sýningunni:  


Katrín Ólína
Cristal Bar, Hong Kong


VA Arkitektar
Blue Lagoon Clinic


Landslag ehf
Siglufjörður Avalanche barriers


Studio Granda
Hof Country residence


Landmótun
Lækurinn

rut kara home
Rut Kára
Home


+ Arkitektar
Hótel Borg renovation


pk-arkitektar
Birkimörk


Kurtogpi
Borgarfjörður High School

Fly Tinna Gunnarsdóttir
Tinna Gunnarsdóttir
Fly


Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir
Visual inner structure

Blown Glass Kristín Sigfriður Garðarsdóttir
Kristín Sigfríður Garðarsdóttir
Blown glass

Krummi Bird Coat Hanger INgibjörg Hanna Bjarnadóttir
Ingibjörg Hanna
Krummi
- Bird Coat Hanger

My family STella Design
Stella Design
My family

Go Form
Go Form
MGO 182 & MGO 500

Shelve life Sigríður Sigurjónsdóttir og Snæfríð Þorsteins
Sigríður Sigurjónsdóttir & Snæfríð Þorsteins
Shelve life

Skrauti Stefán Pétur Sólveigarson
Stefán Pétur Sólveigarson
Skrauti


Snæfríð Þorsteins & Hildigunnur Gunnarsdóttir
2922 days
Rocky Tre Dogg Design
DÖGG DESIGN
Rocky Tre

HOch die Tassen Hrafnkell Birgisson product design
Hrafnkell Birgisson
Hoch Die Tassen

Sproti og Spuni Erla Sólveig Óskarsdóttir
Erla Sólveig Óskarsdóttir
Sproti & Spuni
 
 

Dagur Óskarsson
Dalvík - sled

Utensils Sóley Þórisdóttir
Sóley Þórisdóttir
Utensils

Flower eruption Jón Björnsson
Jón Björnsson
Flower Eruption

Stuðlar FRiðgerður GUðmundsdóttir
Friðgerður Guðmundsdóttir
Stuðlar
















yfirlit