Högna Sigurðardóttir arkitekt ánafnaði Listasafni Reykjavíkur nýlega öllu teikningasafni sínu. Í tilefni af þeirri rausnarlegu gjöf og því að Högna fagnaði áttræðis afmæli sínu á dögunum verður opnuð á Kjarvalsstöðum sýning á byggingarlist hennar með áherslu á íslensk verk, byggð sem óbyggð. Þetta er fyrsta einkasýning á verkum Högnu Sigurðardóttur á Íslandi og er hún unnin í náinni samvinnu við Arkitektafélag Íslands.
Sýningin verður opnuð laugardaginn 7. nóvember kl. 16.
Á sýningartímabilinu verða málþing og fyrirlestrar tileinkaðir Högnu.
Sýningin stendur til 31. janúar 2010.
Íbúðarhús að Bakkaflöt í Garðabæ hefur verið valið sem ein af 100 merkustu byggingum 20. aldarinnar í Evrópu.
HÖGNA SIGURÐARDÓTTIR ARKITEKT
Högna er vel þekkt sem frumkvöðull á sviði byggingarlistar á Íslandi.
Hún hefur með verkum sínum haft mikil áhrif á sjónrænt umhverfi okkar
og þróun íslenskrar byggingarlistar, ekki síst með listrænni tilvísun í
byggingarlistararfinn, dirfsku í notkun náttúrulegra efna auk
skúlptúrel formsköpun bygginga sinna.
Hún var fyrst kvenna til að starfa sem arkitekt hérlendis, og hefur
verið óhrædd við að fara frumlegar leiðir að verkum sínum, þar sem
finna má tilvísun í þekkta erlenda arkitekta 20. aldarinnar - svo sem
Le Corbusier, Louis Kahn, Tadao Ando og fleiri, en jafnframt haldið á
lofti afar persónulegri túlkun og nálgun að verkum sínum. Högna vakti á
sínum tíma athygli fyrir að vinna byggingu og innviði hennar sem eina
heild og steypa þannig innréttingar, húsgögn og blómaker með innra rými
byggingarinnar, auk þess að forma nánasta umhverfi hennar sem
órjúfanlegan hluta af heildarmynd hins manngerða umhverfis.
Sunnubraut
|
Sunnubraut | baðherbergi
|
Högna útskrifaðist sem arkitekt frá École Nationale Supérieure des Beaux-Arts í París árið 1960 og hlaut sérstaka viðurkenningu skólans fyrir lokaverkefni sitt Garðyrkjubýli í Hveragerði. Þá þegar var áhugi hennar á sérkennum landsins, íslenskrar náttúru og veðurfars innblástur í frumlega og sérstaka byggingarlist, sem hún þróaði áfram í seinni verkum sínum.
Högna hefur búið og starfað í Frakklandi allt frá námsárunum en jafnframt því skapað mörg bestu verka sinna hérlendis.
Henni hefur hlotnast fjöldi alþjóðlegra viðurkenninga fyrir verk sín, og tók meðal annars sæti í hinni virtu Frönsku Byggingarlistarakademíu árið 1992, auk innlendra viðurkenninga svo sem menningarverðlauna DV í byggingarlist 1994 og heiðursorða Sjónlistaverðlauna Listasafns Akureyrar 2007. Íbúðarhús sem hún teiknaði að Bakkaflöt í Garðabæ hefur verið valið sem ein af 100 merkustu byggingum 20. aldarinnar í Evrópu. Árið 2008 var Högna Sigurðardóttir kosinn heiðursfélagi Arkitektafélags Íslands.
Í tengslum við sýninguna verður gefin út ítarleg sýningarskrá um verk Högnu.
Sýningarstjóri er Guja Dögg Hauksdóttir, deildarstjóri byggingarlistardeildar Listasafns Reykjavíkur og samstarfshópur er skipaður þeim Önnu Sóleyju Þorsteinsdóttur, Laufeyju Agnarsdóttur, Magnúsi Jenssyni og Sigríði Maack, arkitektum.
Þjóðminjasafni Íslands eru færðar sérstakar þakkir fyrir framlag sitt til sýningarinnar.
Brekkugerði | í byggingu
DAGSKRÁ
Málþing, laugardaginn 14. nóvember kl. 14-17
Þátttakendur
með erindi í pallborði verða Steinþór Kári Kárason, Jes Einar
Þorsteinsson, Hrefna Þorsteinsdóttir, arkitektar og Þóra Sigurðardóttir
listamaður.
Sýningarstjóraspjall laugardaginn 28. nóvember kl. 15
Guja Dögg Hauksdóttir.
Fyrirlestur þriðjudaginn 12. janúar kl. 20
Pétur H. Ármannsson arkitekt.
Sýningarstjóraspjall laugardaginn 23. janúar kl. 15
Guja Dögg Hauksdóttir.
Brekkugerði | arinstofa
Styrktaraðilar sýningarinnar: Minningarsjóður Dr. Phil. Guðjóns
Samúelssonar, Mennta- og menningarmálaráðuneyti Íslands,
Húsafriðunarnefnd, Bær listasetur, Myndhöfundasjóður Íslands,
Íbúðalánasjóður Íslands, Franska sendiráðið á Íslandi, Argos ehf.,
Arkís, Arkibúllan arkitektar, Arkitektar Hjördís & Dennis ehf ,
Arkiteo ehf, Arkitektur.is, Arkþing ehf , Á stofunni arkitektar,
Björgun ehf, BYKO, Einrúm ehf arkitektar, Framkvæmdasýsla ríkisins,
Garðabær, Gláma/Kím arkitektar, Kanon arkitektar ehf, Kisan Concept
Store, Listaháskóli Íslands - hönnunar- og arkitektúrdeild, Hornsteinar
arkitektar ehf, Högnur, PK arkitektar ehf, Plúsarkitektar, Skipulags-
og byggingarsvið Reykjavíkurborgar, Studio Granda arkitektar, Tark
teiknistofan ehf , Teiknistofan Tröð ehf, Vestmannaeyjabær.
Þakkir: Format-Akron ehf, Hönnunarmiðstöð Íslands, Húsasmiðjan,
Leturprent ehf , Pixel prentþjónusta, Skipulags- og umhverfissvið
Kópavogs, Tækni- og um hverfissvið Garðabæjar, Umhverfis- og
framkvæmdasvið Vestmannaeyjabæjar.
Þetta segir í fréttatilkynningu frá
Listasafni Reykjavíkur.