20.10.2009

Hringur á fingur | Sýning

Félag íslenskra gullsmiða fagnar 85 ára afmæli í ár. Félagið er meðal elstu starfandi fagfélaga á landinu.

Af þessu tilefni opnar samsýning félagsmanna í Fógetahúsinu, Aðalstræti 10, laugardaginn 24. október kl.16:00.

Hringur á fingur er titill sýningarinnar og  á sýningunni má sjá fjölbreytta hringa allt frá hefðbundnum til framúrstefnulegri gripa. Sýningin stendur frá 24. október 2009 til 22. nóvember 2009.















yfirlit