9.8.2009

Íslensk hönnun 2009 | Húsgögn, vöruhönnun og arkitektúr



Listasafn Reykjavíkur | Kjarvalsstaðir | Sýningin stendur frá 15. maí  til 9. ágúst



Yfirlitsmyndir frá sýningunni.
Ljósmyndari: Ingvar Högni Ragnarsson

Fátt er eins lýsandi fyrir mannlegt samfélag og það umhverfi sem maðurinn hefur mótað til daglegra athafna. Segja má að í manngerðu umhverfi birtist spegilmynd hönnunarsögunnar; ólíkar myndir hönnunar, breytilegar eftir tíðaranda, gildismati, ríkjandi hugmyndafræði, túlkun  og aðstæðum hverju sinni.

Á sýningunni er sýnd íslensk samtímahönnun þar sem er unnið með tengsl þriggja hönnunargreina sem eiga stóran þátt í því að móta manngert umhverfi með samspili sín á milli. Á sýningunni er samhengi þeirra skoðað og hvernig þær eru samofnar mannlegri hegðun allt frá því að eiga þátt í  að skipuleggja tímann, væta kverkarnar eða  verja okkur fyrir náttúruhamförum. Sýnd eru gríðarstór mannvirki og fínleg nytjahönnun sem eiga þó það sameiginlegt að tilheyra manngerðu umhverfi og vera mótandi þáttur í því.

Sýningunni er ætlað að vera spegill þess sem telja má á einn eða annan hátt gæði í íslenskri hönnun undanfarin ár og gefa ákveðna mynd af íslenskri samtímahönnun. Þar sem góðar hugmyndir hafa þroskast af faglegum metnaði, alvöru og skynsemi; hugmyndir sem eru unnar til enda í anda hugsunarháttar sem vert er að setja á oddinn í dag. Markmiðið er að árétta gildi góðrar hönnunar og öflugs hugvits fyrir mannlegt samfélag -  verðmæti  til að virkja  til framtíðar.

Sýningunni er ætlað að kynna brot af því besta sem er að gerast í íslenskri hönnun í dag með áherslu á húsgagna- og vöruhönnun og arkitektúr. Sýnd eru verk frá um 20 hönnuðum sem eru valin með það í huga að eiga erindi ytra til frekari kynningar, sölu eða framleiðslu. Samhliða hönnunarsýningunni er kynning á verkum ungra, efnilegra hönnuða í samvinnu við Hönnunarsjóð Auroru. Sýningarstjóri er Elísabet V. Ingvarsdóttir. Sýningin er samstarf Listasafns Reykjavíkur og Hönnunarmiðstöðvar Íslands og er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík.

 

Þátttakendur og verk á sýningunni:

 

Katrín Ólína

Cristal Bar, Hong Kong

 

Kurtogpí

Menntaskóli Borgarfjarðar

 

Landmótun

Lækurinn (umhverfi,hfj.)

 

Landslag ehf

Snjóflóðavarnir á Siglufirði

 

pk-arkitektar

birkimörk (heimili f. fötluð ungmenni)

 

+ARKITEKTAR

Hótel Borg (innviðir endurgerð)

 

Rut Káradóttir 

heimili

 

Studio Granda

Hof Höfðaströnd

 

VA Arkitektar

Bláa Lónið –Lækningalind

 

Tinna Gunnarsdóttir

Fluga (garðborð)

 

Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir

Visual inner structure (stóll)

 

Kristín Sigfríður Garðarsdóttir

munnblásið gler (glös,karöflur, og skálar)

 

Ingibjörg Hanna

Bird Coat Hanger

 

Stella Design

Fjölskyldan mín (glös)

 

go form

MGO 182 & MGO 500

 

Sigríður Sigurjónsdóttir & Snæfríð Þorsteins

Hillurnar eru komnar á fætur (hillur á bambusfótum)

 

Stefán Pétur Sólveigarson

Skrauti (kertastjaki)

 

Snæfríð Þorsteins & Hildigunnur Gunnarsdóttir

2922 dagar (dagatöl)

 

AÐalsteinn Stefánsson & Aleksej Iskos 

Ornametrica (loftljós)

 

DOGG DESIGN

Rocky Tre (ruggustóll)

 

DOGG DESIGN

HEKLA & KÍNA (hnífapör og prjónar)

 

Hrafnkell Birgisson

Hábolli

 

Erla Sólveig Óskarsdóttir

Sproti & Spuni

 

vaxtarbroddar

 

Dagur Óskarsson

Dalvíkursleði

 

Friðgerður Guðmundsdóttir

Stuðlar (skilrúm)

 

Jón Björnsson

Flower Eruption (sandvasar)

 

Sóley Þórisdóttir

Áhöld

 

Þórunn Árnadóttir

KLUKKA






www.artfest.is

www.listasafnreykjavikur.is
















yfirlit