Fréttir

20.11.2019

Nýr dagskrárstjóri fyrir HönnunarMars 2020




Ellen Loftsdóttir hefur verið ráðin dagskrárstjóri HönnunarMars 2020 og mun halda utanum dagskrá hátíðarinnar í samstarfi við stjórnanda HönnunarMars, Þóreyju Einarsdóttur, 6 manna valnefnd og aðra verkefnastjóra hátíðarinnar.

Ellen hefur starfað síðastliðin 12 ár við stíliseringu og listræna stjórnun fyrir íslensk og erlend fyrirtæki auk tískutímarita á borð við I-D magazine, ELLE, Glamour, Euroman og Costume.
Hún var listrænn stjórnandi hjá Reykjavik Fashion Festival í 4 ár og lærði tísku PR & comunication við London Collage of Fashion. Ellen er einnig stofnandi og listrænn stjórnandi Favorite Magazine, sjálfbært tískutímarit sem selt er í yfir 20 verslunum út heim allan.

Ellen hefur tekið til starfa sem dagskrárstjóri fyrir HönnunarMars 2020 og ber ábyrgð á að halda utanum dagskrá hátíðarinnar í samstarfi við stjórnanda HönnunarMars, Þóreyju Einarsdóttur, 6 manna valnefnd og aðra verkefnastjóra hátíðarinnar.
Í því felst meðal annars að undirbúningur dagskrár, vinna að dagskráliðum sem Hönnunarmiðstöð framleiðir svo sem Design Diplomacy og DesignMatch. Hún mun vinna með sýnendum og þátttakendum í að tryggja sem bestu gæði í dagskránni hvað varðar staðsetningar, tímasetningar og tengingar á milli viðburða og sýninga.

Hægt er hafa samband við Ellen beint á dagskra@honnunarmars.is.


Ellen Loftsdóttir.                                                                 Mynd/Ari Magg

Lokað hefur verið fyrir umsóknir á HönnunarMars 2020 og við erum spennt að svipta hulunni af dagskrá hátíðarinnar 2020 sem fer fram dagana 25-29 mars.

Við minnum á að búið er að opna fyrir miðasölu á alþjóðlegu ráðstefnuna 
DesignTalks hefur fest sig í sessi sem einn af lykilviðburðum
HönnunarMars. 
Þann 26. mars 2020 munu framúrskarandi hönnuðir, arkitektar og hugsuðir ræða síbreytilegt hlutverk hönnunar í heimi nýrra áskoranna og stórfelldra breytinga undir þemanu NÝR HEIMUR // NÝJAR LEIÐIR. 
Viðburðinum er stjórnað af Hlín Helgu Guðlaugsdóttur, hönnuði, ráðgjafa og framtíðarrýni og ásamt henni mun Robert Thiemann vera kynnir en hann er 
stofnandi og aðalritstjóri FRAME.

ÝTTU HÉR TIL AÐ KAUPA MIÐA


Sjáumst á HönnunarMars 2020!
















Yfirlit



eldri fréttir