Fréttir

15.11.2019

Genki Instruments hlýtur Hönnunarverðlaun Íslands 2019



Ljósmyndir/ Aldís Pálsdóttir

Wave eftir Genki Instruments er handhafi Hönnunarverðlauna Íslands 2019. Viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun hlýtur Omnom og Heiðursverðlaunahafi Hönnunarverðlauna Íslands er Manfreð Vilhjálmsson, arkitekt.
Hönnunarverðlaun Íslands 2019 voru afhent við hátíðlega athöfn í Iðnó í kvöld, 14. nóvember. Greipur Gíslason var kynnir kvöldsins.


Það var Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra sem veitti Genki Instruments aðalverðlaun kvöldsins, Hönnunarverðlaun Íslands 2019, fyrir Wave hringinn sem hannaður er til að auka upplifun og túlkun í tónlist. Hringurinn er framsækin tæknilausn sem eykur möguleika tónlistamanna til sköpunar á þægilegan og notendavænan hátt. Í umsögn dómnefndar segir meðal annars.
„Genki Instruments er framsækið og hönnunardrifið tónlistartæknifyrirtæki þar sem hönnun, tækni, verkfræði, og tónlist renna saman í eitt. Wave er einstakt dæmi um framsækna hugmynd frumkvöðlafyrirtækis þar sem rannsókn, þróun og prófanir í gegnum allt hönnunarferlið skilar algerlega nýrri upplifun til notenda sem hefur hlotið lof víða um heim.“

Teymið á bakvið Genki er skipað þeim Ólafi Bogasyni, Haraldi Þóri Hugosyni, Jóni Helga Hólmgeirssyni, Þorleifi Gunnari Gíslasyni og Daníel Grétarssyni.



Veronica Filippin og Óskar Þorleifsson frá Omnom.

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins veitti Omnom súkkulaðigerð viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun 2019. Omnom framleiðir handgert súkkulaði, stofnuð af Kjartani Gíslasyni og Óskari Þórðarsyni árið 2013.
Í umsögn dómnefndar segir meðal annars:

„Ferlið á bak við vöruþróun er spennandi en Omnom hefur frá byrjun unnið með hönnuðum í öllu framleiðsluferlinu að heildrænni vöruupplifun, hvort sem það er súkkulaðið sjálft eða með vandaðri hönnun á umbúðum og framsetningu í verslunum. Fyrst með hönnuðinum André Visage og nú með Veronicu Filippin. Slík samvinna í öllu ferlinu er skýrt dæmi um hvernig hönnun getur haft afgerandi áhrif á vaxtarsögu og velgengni fyrirtækis.“



Manfreð Vilhjálmsson, arkitekt tekur við heiðursverðlaunum.

Í fyrsta sinn voru veitt Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands sem Manfreð Vilhjálmsson, arkitekt hlaut.
Í umsögn dómnefndar um Manfreð segir meðal annars:

Hönnun og byggingar Manfreðs Vilhjálmssonar eru meðal bestu dæma um góðan arkitektúr á Íslandi en verkin bera vitni um vandaða hönnun og arkitektúr þar sem efni, form og samhengi skapa eina órjúfanlega heild.
Manfreð Vilhjálmsson arkitekt hefur markað djúp spor í sögu arkitektúrs á Íslandi. Einstakur starfsferill sem spannar yfir 60 ár endurspeglar áræðni í fjölbreyttum verkefnum og metnaðarfulla listræna og faglega sýn. Eftir Manfreð liggur fjöldi tímamótaverka sem bera vott um einstaka hæfni til að takast á við margvíslegar áskoranir staðhátta og uppbyggingar í ungu samfélagi.

Manfreð nam arkitektúr við Chalmers Tekniska Högskola í Gautaborg og lauk námi 1954. Eftir heimkomu 1956 var hann meðal brautryðjenda nýrra hugmynda í arkitektúr hér á landi. Í verkum Manfreðs birtast margvíslegar nýjungar í íslenskri húsagerðalist en jafnframt sýna verk hans frá fyrstu tíð næmi á umhverfi og viðleitni við að leysa verkefni í samræmi við tíðaranda og í skýru menningarlegu samhengi.
Hönnunarverðlaun Íslands hafa verið veitt árlega frá 2014. Verðlaunin varpa ljósi á
mikilvægi og gæðum íslenskrar hönnunar og arkitektúrs, enda er vægi hönnunar í menningu, samfélagi og viðskiptalífi alltaf að aukast.
Verðlaunin beina sjónum að því besta sem gert er á sviði hönnunar og
arkitektúrs á Íslandi um leið og einstaka hönnuðum eða hópum hönnuða er veitt mikilvæg viðurkenning.

Í dómnefnd verðlaunanna 2019 sátu Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir, formaður dómnefndar og hönnuður, Hörður Lárusson, grafískur hönnuður, Sigrún Birgisdóttir, arkitekt, Sigrún Halla Unnarsdóttir, fatahönnuður, Daniel Golling sýningarstjóri sænska arkitektúrsafnsins og Edda Björk Ragnarsdóttir frá Samtökum Iðnaðarins.

Hönnunarmiðstöð Íslands stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands og Listaháskóla Ísland og með stuðningi frá Landsvirkjun og Samtökum Iðnaðarins.


















Yfirlit



eldri fréttir