Fréttir

8.11.2019

HönnunarMars 2020 I Umsóknarfrestur rennur út sunnudaginn 10. nóvember




Besti tími ársins, HönnunarMars hátíðin er nær en þig grunar!

 
Við viljum vekja athygli á því að umsóknarfrestur fyrir þátttakendur lýkur á miðnætti sunnudaginn 10. nóvember - ekki á morgun heldur hinn!
 
Umsóknarferlið er styttra en áður svo tími gefist til að vanda betur til undirbúnings og kynningarstarfs fyrir hátíðina 2020 - en HönnunarMars er ein af 6 borgarhátíðum Reykjavíkur.
 
Hverjir eiga að sækja um?
- hönnuðir, arkitektar, stúdíó og stofur.
- fyrirtæki sem byggja starfsemi sína eða leggja sérstaka áherslu á hönnun eða arkitektúr.
- fyrirtæki sem selja hönnun eða hannaðar vörur.
- menningarstofnanir, söfn og sýningarsalir sem standa fyrir eða hýsa sýningar eða viðburði.
- menntastofnanir á svið hönnunar og arkitektúrs.

 
Það er auðvelt að sækja um á vefsíðu HönnunarMars þar sem allar helstu upplýsingar um gjaldskrá og dagsetningar eru aðgengilegar.
Ýttu hér til að sækja um þátttöku á HönnunarMars 2020.

 
HönnunarMars 2020 fer fram dagana 25-29. mars en formleg dagskrá hátíðarinnar er nú fimm dagar, frá miðvikudegi til sunnudags þó allur marsmánuður sé auðvitað undirlagður af hönnun og arkitektúr.
DesignTalks ráðstefnan í Hörpu, fer fram fimmtudaginn 26. mars og er miðasala hafin hér.
 
Ef frekari spurningar vakna endilega sendu fyrirspurn á info@honnunarmars.is.
















Yfirlit



eldri fréttir