Fréttir

7.11.2019

Málþing Hönnunarmiðstöðvar I Hannað í hring - hönnun sem tæki til að þróa nýjar leiðir og sjálfbærar lausnir 




Hönnunarmiðstöð Íslands stendur fyrir málþingi í tengslum við Hönnunarverðlaun Íslands 2019. Málþingið fer fram í Iðnó þann 14. nóvember kl. 15-17. 




Yfirskrift málþingsins er HANNAÐ Í HRING. Haldin verða snörp myndræn erindi um hönnun sem tæki til að þróa nýjar leiðir og sjálfbærar lausnir .
Fjallað verður um sjálfbærar byggingar, matarhönnun, hönnun velferðarkerfis, hönnun sjálfbærra efna og hvernig hægt er að skilja og einfalda flókin kerfi með hönnun. 

Að erindunum loknum verða skarpar pallborðsumræður um hlutverk hönnunar með heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun að leiðarljósi.

Meðal þeirra sem halda erindi eru Halldór Eiríksson arkitekt/Tark, Guðberg Björnsson hönnunarstjóri og stofnandi Lauf, Edda Jónsdóttir frá Stafrænni Reykjavík, Katrín María Káradóttir fatahönnuður og fagstjóri námsbrautar í fatahönnun hjá Listaháskóla Íslands, Kristín María Sigþórsdóttir, vöruhönnuður og Nils Wiberg frá Gagarín.

Í panel sitja meðal annarra Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Anna María Bogadóttir arkitekt og lektor í arkitektúr í Listaháskóla Íslands, Andri Snær Magnason rithöfundur og Magnús Þór Torfason, lektor í nýsköpunar- og frumkvöðlafræðum hjá Háskóla Íslands. 



Stjórnandi málþingsins er fjölmiðlakonan Fanney Birna Jónsdóttir.
 
Hvar: Iðnó
Hvenær: 14. nóvember kl. 15-17


Hér er viðburðurinn á Facebook.
 
Sjáumst!
 
Við minnum á afhendingu Hönnunarverðlaun Íslands 2019 sem fara fram í Iðnó milli 18-19 sama dag. Hér er viburðurinn á Facebook.

Að verðlaunaafhendingu lokinni heldur gleðin áfram í útgáfuhófi HA en 10. tölublað tímaritsins kemur út sama kvöld og inniheldur meðal annars ítarlega umfjöllun um Hönnunarverðlaunin og viðtöl við vinningshafa þeirra.
















Yfirlit



eldri fréttir