Fréttir

4.11.2019

Iwo Borkowicz með hádegisfyrirlestur í Listaháskóla Íslands 5. nóvember




Iwo Borkowicz. pólskur arkitekt og gestakennari í vöruhönnun við hönnunar- og arkitektúrdeild sem heldur hádegisfyrirlesturinn Former elements in a new assemblage sem hluta af fyrirlestrarröðinni
Gestagangur þriðjudaginn 5. nóvember 2019 klukkan 12:15 í fyrirlestrarsal A í húsi hönnunar- og arkitektúrdeildar LHÍ að Þverholti 11.

 
Þekktustu verk Iwo spanna allt frá endurhönnun félagsíbúða í Kúbu, gerð skóla í flóttamannabúðum í Tansaníu og til skúlptúra í Póllandi sem byggðu á gögnum um loftlagshlýnun. Hann er einn stofnenda arkitektastofunnar JEJU.studio en meginmarkmið stofunnar er að miðla rýmisskilningi samtímans með formum sem eru á mörkum klassískrar fegurðar og hversdagslegs vandræðaleika.
 
Iwo hlaut verðlaun Fundació Mies van der Rohe árið 2016 sem ungur og upprennandi arkitekt ásamt EAAE verðlaunum frá European Architectural Medals Committee. Árið 2017 var Iwo valinn einn af 20 ungum hönnuðum heimsins sem koma til með að breyta framtíð hönnunar, hópurinn var tilnefndur af World Design Events.

Hér er viðburðurinn á Facebook.

Heimasíða JEJU.studio.

















Yfirlit



eldri fréttir