Fréttir

25.10.2019

Silfursmiðurinn Anna María Pitt opnar vinnustofu í Hönnunarsafni Íslands




Silfursmiðurinn Anna María Pitt tekur yfir vinnustofurýmið í safnbúð Hönnunarsafns Íslands og stendur vinnustofudvölin til 26. janúar 2020.

Þetta er einnig sölusýning þar sem gestir geta verslað beint af hönnuðinum. 

Anna María útskrifaðist frá New Buckinghamshire háskólanum í Bretlandi í silfursmíði og skartgripahönnun.

Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga og þróað með sér afgerandi stíl í skartgripahönnun sem byggir á formum og mynstrum úr náttúrunni.

Hér er viðburðurinn á Facebook.

















Yfirlit



eldri fréttir