Mynd/Tommy Frost
Samsýning íslenskra og erlendra hönnuða í sýningunni
Crossover eftir Adorno fer fram á London Design Fair, dagana
19-22. september næstkomandi.
Á sýningunni Crossover eftir Adorno mætist úrval verka eftir sjálfstætt starfandi hönnuði frá 11 löndum. Hönnuðirnir og verkin eru vandlega valin af sýningarstjórum frá hverju landi, markmiðið er
að sýna stöðu hönnunar í ólíkum löndum og það áhugaverðasta sem er að gerast á hverjum stað.
Átta íslenskir hönnuðir taka þátt í sýningunni en sýningarstjórar Reykjavík Collection eru
María Kristín Jónsdóttir og Hlín Helga Guðlaugsdóttir. Hönnuðirnir sem taka þátt í Crossover í London eru:
Studio Hanna Whitehead, Ragna Ragnarsdóttir, 1+1+1, Theodóra Alfreðs, Studíó Flétta, Björn Steinar Blumenstein, Tinna Gunnarsdóttir, Rúna Thors & Hildur Steinþórsdóttir.
Aðrir hönnuðir í sýningunni koma frá
Danmörku, Frakklandi, Ítalíu, Belgíu, Mexíkó, Finnlandi, Svíþjóð, Sviss, Tyrklandi og Noregi. Hér er hægt að skoða alla hönnuði og lesa nánar um þá á heimasíðu Adorno
hér.
Hjá Adorno er lögð áhersla á verk hönnuða sem dansa á mörkum listar, hönnunar og handverks. Hönnuði sem móta senuna og þróa nýtt tungumál hönnunar ásamt því að viðhalda aldgömlum handverkshefðum í bland við nýrri og tæknilegri. Á sýningunni Crossovers by Adorno eru dregin fram fagurfræðileg einkenni hverrar senu fyrir sig og efnt til samtals á milli ólíkra þjóða, samtal sem hefst í hönnun en varpar líka ljósi á menningar- og samfélagsleg málefni.
Sýningin fer fram í
Old Truman Brewery í London og opnar 19. september á London Design Fair. Hægt er að fylgjast með sýningunni á samfélagsmiðlum Adorno:
Facebook og
Instagram.
Hér má svo finna viðburðinn á Facebook.
Hönnunarfyrirtækið Adorno var stofnað árið 2017 af þeim
Kristian Snorre Andersen og Martin Clausen og sérhæfir sig í að búa til og stuðla að samstarfi og samtali á milli hönnuða. Þeir framleiddu hönnunarsýninguna Now Nordic sem var ein af lykilsýningunum á HönnunarMars 2019 og fór fram í Hafnarhúsinu. Þar var áherslan á norræna samtímahönnun en með sýningunni Crossover hafa þeir tekið þetta skrefinu lengra með því að leiða saman hönnuði frá ólíkum löndum heimsins.
Hönnunarmiðstöð Íslands, Íslandsstofa og sendiráð Íslands í London eru íslenskir samstarfsaðilar sýningarinnar.
London Design Fair fer fram sem fyrr segir dagana 19-22 september og
hér er hægt að forvitnast betur um dagskránna.
1+1+1
Skógarnytjar eftir Björn Steinar Blumenstein sem var frumsýnt á HönnunarMars 2019.
Ragna Róbertsdóttir
Stúdíó Flétta