Ásmundarsalur óskar eftir tillögum að sýningum, viðburðum eða uppákomum 2020 sem fagna fjölbreytileika listarinnar. Kostur er ef fleiri en eitt listform mætast í sýningu. Einnig er óskað eftir umsóknum um aðstöðu fyrir vinnustofu listamanns í Gunnfríðargryfju til tveggja mánaða í senn.
Umsóknir skulu berast á netfangið
asmundarsalur@asmundasalur.is fyrir
10. september næstkomandi en með umsóknum skulu fylgja:
- fullt nafn listamanns
- Lýsing á fyrirhugaðri sýningu/viðburði/verkefni
- Fylgiskjöl - ferilskrá, myndir af verkum, textar o.þ.h
- Vefsíða listamanns ef við á
Ásmundasalur er sjálfstætt starfandi sýningarsalur sem leggur til aðstöðu og vinnustofu fyrir listamenn í miðbæ Reykjavíkur.