Fréttir

14.8.2019

Hönnunarsafn Íslands opnar Hönnunarskóla fyrir ungmenni




Í lok september opnar Hönnunarskóli í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands þar sem markmiðið er að gefa ungmennum á aldrinum 13-16 ára innsýn inn í störf og aðferðafræði hönnuða. 



Hönnunarskólinn hefst þann 24.september næstkomandi og er unninn í samstarfi við Klifið, skapandi setur þar sem hugmyndafræðin byggir á eflandi kennslufræði nýsköpunar- og frumkvöðlamenntar og kenningum um hæfniþróun og leggur áherslu á að efla trú einstaklingsins á eigin getu. Hönnunarsafn Ísland fékk styrk úr Barnamenningarsjóði Rannís til að framkvæma Hönnunarskólann.
 
Hönnunarskólinn er unninn í samtali við Hönnunarsafnið í Kaupmannahöfn og að þeirra fyrirmynd. Það er kennt á þriðjudögum milli 16-18 og stendur yfir í 10 vikur. Kennarar eru Sigríður Sigurjónsdóttir, Signý Þórhallsdóttir, Halla Hákonardóttir, Embla Vigfúsdóttir, Björn Steinar Blumenstein, Kristján Örn Kjartansson og Lóa Hlín Hjálmtýrsdóttir.
 
Sniðugt leið fyrir ungmenni að kynnast því hvernig hönnuðir og hugmyndasmiðir vinna og fá þátttakendur innsýn inn í störf og aðferðarfræði hönnuða.Í gegnum samtöl, skissur og frumgerðir gefst innsýn inn í það hvað felst í því að vera arkitekt, spilahönnuður, vöruhönnuður, fatahönnuður og matarhönnuður.



Sjö hönnuðir koma að kennslu á námskeiðinu sem er byggt þannig upp að í fyrstu tvö skiptin er unnið arkitektaverkefni, næstu tvö spilahönnunarverkefni og þannig koll af kolli.



Verð námskeiðsins er 39.900 kr og hægt er að nota frístundakortið.
 
Frekari upplýsingar má nálgast hér.

















Yfirlit



eldri fréttir