Fréttir

3.7.2019

Auður Edda Jökulsdóttir leiðir vinnu í stefnumörkun um eflingu skapandi greina



                                                                                                             Auður Edda Jökulsdóttir

Ákveðið hefur verið að ráðast í stefnumörkun um eflingu skapandi greina á Íslandi þvert á stjórnsýslu og atvinnulíf.

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, sem mun hafa forystu um stefnumörkunina, hefur fengið Auði Eddu Jökulsdóttur, sendifulltrúa í utanríkisþjónustunni, sem sérstakan ráðgjafa til að leiða þá vinnu í samstarfi við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, kynningarmiðstöðvar listgreina og utanríkisþjónustuna. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Stefnumörkunin verður jafnframt unnin í náinni samvinnu við Íslandsstofu sem vinnur nú að mótun langtímastefnu um markaðssetningu Íslands erlendis og eflingu útflutnings á öllum sviðum, þar á meðal á sviði skapandi greina, í nánu samstarfi við hagsmunaaðila.

Auður Edda hefur gegnt fjölmörgum störfum á vettvangi utanríkis- og alþjóðamála undafarna tvo áratugi, þar á meðal í sendiráðum Íslands í Peking og Berlín, og nú síðast sem forstöðumaður viðskiptaþjónustu og alþjóðlegs menningarsamstarfs í utanríkisráðuneytinu.
















Yfirlit



eldri fréttir