Fréttir

26.6.2019

Stóllinn Skata fagnar 60 ára afmæli á þessu ári




Stóllinn Skata eftir Halldór Hjálmarsson, húsgagna- og innanhússarkitekt fagnar 60 ára afmæli á þessu ári. Að því tilefni verða framleidd tölusett eintök af völdum útgáfum.

Stóllinn Skata er fyrsti formbeygði stóllinn framleiddur á Íslandi og í raun elsti stóllinn sem framleiddur er hér á landi. Hönnuður Skötunnar er Halldór Hjálmarsson, húsgagna- og innanhússarkitekt (1927-2010), sem hannaði til dæmis kaffihúsið Mokka.  Hann hafði þá nýlokið námi sínu í Kaupmannahöfn og hrifist meðal annars mjög af Maurnum eftir Arne Jacobsen, og vildi þróa sambærilegan íslenskan stól úr formbeygðum krossvið, sem þá var tiltölulega ný aðferð og algerlega óþekkt hér á landi.

Skötustóllin náði fljótt töluverðri útbreyðslu, enda alhliða stóll, sem bæði hentaði í stofnanir og heimili.  Stuttu seinna bættist stóllinn Þórshamar við, einnig úr formbeygðum krossvið, en með stærra baki.  Framleiðslan lagðist síðan af 1973, en hófst að nýju 2008, og eru báðir stólarnir nú fáanlegir í ýmsum úfærslum og litum.



Þó dönsku árhrifin séu mjög sterk, og ekki síst frá stólum Arne Jacobsen, þá stendur Skötustóllinn sterkum fótum sem sjálfstæð íslensk hönnun, þar sem blandað er saman nýstárlegum tæknilausnum og ljóðrænum tilvísunum til  náttúrunnar. Festingarnar voru algjör nýjung og minntu auk þess á egg skötufisksins. Sama má segja um hið skötulagaða bak, sem fyrst og fram var hugsað til þess að ná fram sveigjanleika og hámarsstyrk, án þess þó að þyngja stólinn, en fyrstu stólar Arne Jacobsen áttu það til að brotna um hálsinn, þó síðar hafi verið bætt úr því með nýrri tækni.

Skötustóllinn fagnar 60 ára á þessu ári og framleidd verða tölusett eintök af völdum útgáfum. Bæði þeim nýjustu og einnig í sígildri glærri eik. Nánari upplýsingar fást á www.skata.is eða hægt er að senda fyrirspurnir á info@skata.is.

















Yfirlit



eldri fréttir