Fréttir

12.6.2019

HA 09 komið út í nýju útliti eftir StudioStudio



Ritstjórn HA, María Rán Guðjónsdóttir, Garðar Snæbjörnsson, Þorleifur Gunnar Gíslason og María Kristín Jónsdóttir, ritstjóri. Myndir: Eyþór Árnason

Níunda tölublað HA, rit um íslenska hönnun og arkitektúr sem Hönnunarmiðstöð Íslands gefur út tvisvar ári, er komið út. Um að ræða vandað rit, á íslensku og ensku, sem
höfðar til jafns til fagfólks og áhugafólks um hönnun og arkitektúr og gefur innsýn inn fjölbreytt verkefni og sýnir gróskuna sem er í þessum geira hér á landi um þessar mundir.
 
Í þessu níunda tölublaði, sem er í glænýju útliti eftir hönnunarteymið StudioStudio, er meðal annars er skyggnst inn í heim hönnunar, matar og hnattvæðingar í gegnum verkefnið Banana Story eftir Johönnu Seelemann og Björn Steinar Blumenstein, arkitektarnir Bergur Finnbogason hjá CCP og Space Popular færa lesendur inn í heim sýndar- og viðbætts veruleika og framtíðarfræðingurinn Helga Jósepsdóttir segir frá því hvernig hægt sé að hanna framtíðina.
 
Gunnar Vilhjálmsson og Kalapi Gajjar-Bordawekar hjá letursmiðjunni Universal Thirst segja frá indverskri og arabískri týpógrafíu, fata- og textílhönnuðurinn Helga Lára Halldórsdóttir útskýrir hvernig það sem hún kallar „rýmisgreind vandræðaleikans“ varð að fatalínu. Þá deilir Philip Fimmano tísku- og lífsstílssérfræðingur hugleiðingum sínum, leirlistakonan og hönnuðurinn Kristín Sigfríður Garðarsdóttir segir frá ferlinu bakvið nýafstaðna einkasýningu sína í Hafnarborg og arkitektinn Rafael Pinho skrifar um krosslímt timbur (KLT) og möguleika í íslenskri skógrækt.

Allt þetta og miklu meira í nýjasta tölublaði HA - ekki gleyma að tryggja þér eintak inn í sumarið!







Sjáðu fleiri myndir frá útgáfugleðinni hér.
















Yfirlit



eldri fréttir