Fréttir

11.6.2019

Styrkir til markaðssetningar á Norðurlöndunum





Nú er hægt að sækja um styrki fyrir fjármögnum á verkefnum sem hafa það að markmiði að efla ímynd Norðurlandanna á alþjóðavettvangi. Styrkirnir eru veittir af Norrænu ráðherranefndinni sem vinnur m.a. að stefnumótun í markaðssetningu á Norðurlöndunum.

Sérstaklega er leitast við að styðja við verkefni og samstarf sem endurspeglar sameiginleg gildi Norðurlandanna, svo sem traust, jafnrétti, nýsköpun og sjálfbærni.

Norræna ráðherranefndin er samstarfsvettvangur ríkisstjórna Norðurlanda og vinnur að sameiginlegum, norrænum lausnum sem skila sýnilegum árangri fyrir alla þá sem búa á Norðurlöndum.
Umsóknarfrestur er til 30. ágúst nk.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Norrænu ráðherranefndarinnar hér.

Hér má svo finna Facebook síðu verkefnisins.

















Yfirlit



eldri fréttir