Fréttir

27.3.2019

HönnunarMars að bresta á í allri sinni dýrð




Nú er HönnunarMars svo sannarlega að bresta á í allri sinni dýrð og margt og mikið á dagskránni svo allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

Við mælum með því að skoða dagskránna í heild sinni á vef HönnunarMars hér.


DesignTalks fer fram í Hörpu á morgun og nú fer hver að verða síðastur að næla sér í miða. Ekki missa af þessum degi stútfullum af innblæstri!
Allt um DesignTalks hér

Hér eru nokkrar opnanir dagsins:



Plús eilífð - And Anti Matter

kl. 17 Gróttuvita
And Anti Matter tekst á við nýjan efnivið í innsetningu sinni Plús Eilífð, þar sem huglægt samhengi hlutanna er unnið út frá sögu elskhuganna sem ofin var í jacquard efni. Þrívíddarprentaðir leir munir, tónlist og áfengi verða meðal afurða. Innsetningin er sett upp í draumkenndu mistri Gróttuvita.
 Meira hér

Íslensk hönnun í sinni litríkustu mynd

kl. 17-19 EPAL, Skeifan 6

Verslunin EPAL sýnir úrval af áhugaverðri hönnun eftir fjölbreyttan hóp íslenskra hönnuða sem hafa náð góðum árangri á sínu sviði bæði hérlendis og erlendis.
Með þátttöku EPAL ellefta árið í röð á HönnunarMarsverður sýnd áhugaverð hönnun eftir fjölbreyttan hóp hönnuða.
 Meira hér




Crystal clear - Hlín Reykdal
kl. 19-21 Fiskislóð 75 ( ATH vitlaust tímasetning í fréttabréfinu - viðburðurinn byrjar klukkan 19)

Hlín Reykdal frumsýnir nýja skartgripalínu á Hönnunarmars 2019 ásamt ljósmyndum eftir Önnu Maggý. Hlín og Anna endurspegla tvo miðla á glitrandi og forvitnilegan hátt. Saman hafa þær unnið náið að litríkum og einstökum ljósmyndum ásamt innsetningu út frá skartgripalínu Hlínar. 
Meira hér

Fyrirvari - Brynjar Sigurðarson og Veronika Sedlmair

kl. 20-22 Hafnarborg, Strandgötu 34 Hafnarfjörður
Brynjar Sigurðarson og Veronika Sedlmair sýna í aðalsal Hafnarborgar. Á þessari sýningu verður sköpunarferlið sjálft sýningarefnið, mismunandi stig hugmynda eru sýnd og opnuð almenningi til skoðunar.
Sýningin Fyrirvari miðar að því að þýða eða tengja saman „hluti“ í umhverfinu – þ.e.a.s. náttúru-, borgar- og menningarumhverfi – við hugmyndir og hugleiðingar að nýjum „hlutum“.
Meira hér

DesignDiplomacy


kl. 17-18.30, norski sendiherrabústaðurinn, Fjólugata 15
Tormod Amundsen sem stofnaði Biotope, fyrstu og einu arkitektastofu heims þar sem sérfræðiþekking á fuglum og fuglaskoðun er til staðar og Dagný Bjarnadóttir landslagsarkitekt sem þakti eitt sinn miðbæ Reykjavíkur með teppi af blómum sem voru búin til úr gulum viðvörunarborða taka þátt í opnu samtali á HönnunarMars. Einstakt tækifæri til þess að hitta hönnuði og sækja sér innblástur.
Meira hér



kl. 20-21.30 sænski sendiherrabústaðurinn, Fjólugata 9

Stefan Andersson sem er einn þekktasti leirkerasmiður Svíþjóðar sem hannar einstakan borðbúnað og Hanna Dís Whitehead sem vinnur á mærum myndlistar, hönnunar og handverks og flakkar á milli ólíkra efniviða taka þátt í opnu samtali á HönnunarMars. Einstakt tækifæri til þess að hitta hönnuði og sækja sér innblástur.
Meira hér

Þetta og margt margt fleira ...

Sjáumst á HönnunarMars!


















Yfirlit



eldri fréttir